Holtasóley (Dryas octopetala)

Útbreiðsla

Algeng um allt land. Hún er mjög harðgerð jurt sem finnst á allmörgum stöðum upp í 1000 m hæð, hæst skráð á Kirkjufjalli við Hörgárdal í 1200 m.

Almennt

Þessi jurt gengur undir mismunandi nöfnum eftir þroskastigi. Nafnið holtasóley á einkum við blómgunartímann en hárbrúða eða hármey er hún kölluð þegar aldinið hefur þroskast. Blöðin, sem finna má á öllum árstímum, nefnast rjúpnalauf eða rjúpnalyng og eru mikilvæg fæða rjúpunnar. Áður fyrr var því trúað að rótin drægi til sín peninga, væri hún notuð á réttan hátt og var hún því kölluð þjófarót (Ágúst H. Bjarnason 1994).

Nytjar

Laufblöð holtasóleyjar voru áður þurrkuð og mulin til að drýgja reyktóbak. Hún er talin góð til að stilla hægðir og óhóflega slímmyndun í meltingarvegi. Eins ku hún góð við sárum í maga og öðrum hlutum meltingarvegar og þá ekki síst ef um blæðingar er að ræða. Hún er einnig talin stilla veilt hjarta. Það er einnig gott að nota holtasóley í skol við bólgum og sárum í tannholdi, munni og hálsi. Te hennar má einnig nota í skol gegn útferð og særindum í leggöngum (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998). Einnig má gera te af blöðum holtasóleyjar, ásamt blóðbergi og vallhumli og fá þannig drykk sem er afar góður en einnig hollur heilsunni (Ágúst H. Bjarnason 1994).

Líffræði

2n = 18 (Lid og Lid 2005). Áhrif holtasóleyjarveiga eru barkandi, styrkjandi og lítið eitt örvandi fyrir meltinguna. Virk efni plöntunnar eru barksýrur, kísilsýra og ýmis steinefni (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998).

Búsvæði

Melkollar og þurrir móar. Duglegur landnemi á berum melum og berst gjarnan yfir klappir.

Lýsing

Fjölær (Lid og Lid 2005), lágvaxin planta (5–10 sm) með sígrænum blöðum, hvítloðnum á neðra borði en gljáandi og gishærðum á því efra. Blómstrar stórum, hvítum blómum í maí–júní.

Blað

Myndar flatar þúfur. Blöðin eru á jarðlægum, trékenndum sprotum, um 1,2–2,2 sm á lengd, skinnkennd, dökkgræn, egglaga, tennt, stilkstutt, sígræn, gljáandi á efra borði en þétt hvítloðin á neðra borði. Rendurnar niðurorpnar (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómstönglarnir eru 3–10 sm á lengd og mjúkhærðir. Blómin stór, 2,5–3,5 sm í þvermál. Krónublöðin hvít, mismunandi mörg, oftast 8 og þá 8 bikarblöð. Fræflarnir gulir og mynda þétta þyrpingu í miðju blómsins. Frævurnar margar (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Margar smáhnetur (Blamey og Grey-Wilson 1992). Við aldinþroskun verður stíllinn að löngum, fjaðurhærðum hala upp úr aldininu. Fræin mynda því saman líkt og snúinn, ljósbrúnan hárlokk. Vinddreifing.

Afbrigði

Á Svalbarða má stundum finna gulhvítar holtasóleyjar og einnig má finna ljósrauðar en það er sjaldgæft (Lid og Lid 2005).

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir. 1998. Íslenskar lækningjurtir: söfnun þeirra, notkun og áhrif (2. útg.). Íslensk náttúra IV. Mál og menning, Reykjavík.

Ágúst H. Bjarnason og Eggert Pétursson. 1994. Íslensk flóra með litmyndum. Forlagið, Reykjavík.

Blamey, M. og Grey-Wilson, C. 1992. Myndskreytt flóra Íslands og Norður-Evrópu. Óskar Ingimarsson og Jón O. Edwald íslenskuðu. Skjaldborg hf., Reykjavík.

Hörður Kristinsson. 2008. Íslenskt plöntutal: Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Lid, J. og D.T. Lid. 2005. Norsk flora (7. útg.). Ritstj. Reidar Elven. Det Norske Samlaget, Oslo.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Rósaætt (Rosaceae)
Tegund (Species)
Holtasóley (Dryas octopetala)