Hrútaber (Rubus saxatilis)

Útbreiðsla

Algengt á láglendi um allt land, finnst þó allvíða upp í 500 m hæð við góðar aðstæður.

Almennt

Tegundin er einnig nefnd hrútaberjaklungur en klungur merkir þyrnir (Ágúst H. Bjarnason 1994). Renglur plöntunnar eru nefndar skollareipi eða tröllareipi og er það vísun í þá þjóðtrú að þær mátti nota til að fjötra niður illa vætti (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998).

Nytjar

Berin eru góð til átu, jafnt fersk sem í hlaup og sultur. Eins hefur jurtin lækningarmátt, t.d. þykir te úr berjadufti gott gegn lausum hægðum barna (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998).

Líffræði

Tegund þessi inniheldur m.a. C-vítamín, barksýrur og fleiri sýrur (Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir 1998).

Búsvæði

Það vex í frjósömum brekkum og bollum, einnig oft í skógarbotnum.

Lýsing

Jarðlæg planta (10–20 sm) með þrífingruð laufblöð og hvít, fimmdeild blóm. Þroskar rauða berjaklasa. Blómgast í júlí.

Blað

Myndar stundum mjög langar, jarðlægar renglur. Laufblöðin stilklöng, þrífingruð, blaðstilkar loðnir og oft með örsmáum þyrnum. Smáblöðin tvísagtennt, egglaga eða tígullaga, hliðarsmáblöðin á örstuttum stilk eða stilklaus, miðsmáblaðið á nokkru lengri stilk, axlablöð lítil, 3–5 mm á lengd (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Blómin eru fimmdeild, 8–10 mm í þvermál. Krónublöðin hvítleit, spaðalaga, naglgrönn. Bikarinn klofinn langt niður. Bikarblöðin græn, loðin, oddmjó, 5–6 mm á lengd (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldinin eru rauð, gljáandi steinaldin, 7–8 mm í þvermál, sitja nokkur þétt saman, hvert með einum steini utan um fræið (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Auðþekkt í blóma eða aldini. Blómlaus líkist tegundin jarðaberjalyngi en blöð hrútaberjalyngsins má þekkja á stilk miðsmáblaðsins, minni hæringu og á örfínum þyrnum á blaðstilkunum.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir. 1998. Íslenskar lækningjurtir: söfnun þeirra, notkun og áhrif (2. útg.). Íslensk náttúra IV. Mál og menning, Reykjavík.

Ágúst H. Bjarnason og Eggert Pétursson. 1994. Íslensk flóra með litmyndum. Forlagið, Reykjavík.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Rósaætt (Rosaceae)
Tegund (Species)
Hrútaber (Rubus saxatilis)