Gulvíðir (Salix phylicifolia)

Útbreiðsla

Gulvíðir er algengur um allt landið upp í 550 til 600 m hæð en vex sjaldan hærra.

Búsvæði

Kann oftast best við sig í deiglendi. Engjar og bakkar meðfram ám, hlíðar og mólendi, einkum þar sem nokkur jarðraki er, myndar stundum undirgróður í birkiskógum og velur sér þá lægri og votari svæðin innan birkiskógarins.

Lýsing

Runni eða tré sem getur verið allt að 5 m hár, blöðin fagurgræn og aflöng. Blómgast í maí–júní.

Blað

Runni sem verður oft 4 m hár við góð skilyrði, jafnvel hærri þar sem hann vex inni í þéttum skógi. Gulvíðir breiðir mikið úr sér til hliðanna og myndar oft kringlótta runna sem verða 5-10 m í þvermál og 4-5 m á hæð. Greinar gulvíðisins eru venjulega klæddar gljáandi, dökkbrúnum eða rauðbrúnum hárlausum berki, stundum þó ljósari brúnum eða grænleitum, einkum ársprotarnir. Laufblöðin eru 2-6 sm á lengd og 1-2,5 sm á breidd, dökkgræn, gljáandi og að jafnaði hárlaus á efra borði, ljósgræn eða lítið eitt grádöggvuð og mött á neðra borði, oftast einnig óhærð þar eða stundum með nokkrum hárum einkum á blaðstilkum, jöðrum og eftir æðastrengjum. Blöðin geta verið smá, mjó, oddbaugótt og lensulaga eða stutt, breið og öfugegglaga. Ung blöð í vexti eru einnig fremur hærð en fullþroskuð blöð. Blaðrendurnar eru greinilega niðurorpnar, oftast lítið eitt tenntar, en stundum eru blöðin heilrend.

Blóm

Blómin eru einkynja í sérbýli, sitja mörg saman í 2-6 (8) sm löngum reklum. Rekilhlífarnar eru með löngum hárum, ljósmóleitar. Tveir fræflar eru í hverju karlblómi, frjóhirslurnar gular. Ein loðin fræva í kvenblómunum, stíllinn og frænið gulgræn að lit.

Aldin

Aldinin eru hærð, fremur gisstæð og standa nokkuð lárétt út frá reklinum, oftast gulgræn á litinn, sjaldnar gráleit.

Afbrigði

Gulvíðir getur myndað kynblendinga við fjallavíði og viðju. Kynblendingar við fjallavíði hafa stundum verið greindir til Salix planifolia.

Greining

Gulvíðirinn er fremur auðþekktur, þó getur verið erfitt að greina jarðlæga sprota frá fjallavíði, einkum þegar hann er ekki blómgaður, og ungar fræplöntur geta líkst viðju. Gulvíðiblöðin þekkjast helst á niðuropnum, örlítið tenntum blaðröndum (geta þó verið heilrendar), og á gljáandi og hárlausu efra borði blaðanna. Kvenreklarnir eru gulgrænir fremur en gráir, og oft heldur gisnari en á fjallavíðinum. Gulvíðirinn þekkist frá viðju af því að hann breiðir mikið úr sér til hliðanna og myndar oft kringlótta runna, en viðja myndar oftast granna, einstofna runna. Gulvíðir er einnig er stærstur af íslensku víðitegundunum.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Víðisætt (Salicaceae)
Tegund (Species)
Gulvíðir (Salix phylicifolia)