Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata)

Útbreiðsla

Bergsteinbrjótur er með sjaldgæfari steinbrjótum landsins og hefur ekki verið skráður ofan 500 m. Hann er algengastur norðantil á Austfjörðum, einkum frá Borgarfirði suður í Breiðdalsvík en er þó mun sjaldgæfari en frænka hans, klettafrúin. Hann finnst einnig á nokkrum stöðum á Vesturlandi, einkum frá Leirársveit norður í Borgarfjörð. Örfáir staðir eru einnig þekktir um Snæfellsnes og Vestfirði og í Vatnsdal og Siglufirði á Norðurlandi.

Búsvæði

Klettaskorur, gljúfurveggir, árgljúfur og hamrabelti.

Lýsing

Fremur lágvaxin planta (10–18 sm) með aflöng blöð í stofnhvirfingu og hvíta blómklasa. Blöðin alsett hvítum kalktönnum. Blómgast í júlí.

Blað

Stöngullinn kirtilhærður með stakstæðum, um 5 mm löngum blöðum. Stofnblöðin þétt saman í hvirfingu, tungulaga, 7–15 mm löng og um 5 mm breið. Blaðrendurnar þétt settar hvítum kalktönnum (Hörður Kristinsson 2010).

Blóm

Nokkur blóm standa saman í stuttum klasa efst á stöngli, blómin hvít, fimmdeild, um 1 sm í þvermál. Krónublöðin snubbótt í endann, bikarinn stuttur. Fræflar tíu, ein klofin fræva (Hörður Kristinsson 2010).

Greining

Líkist klettafrú en blómskipanir hans eru minna greindar og blöðin í stofnhvirfingunni eru minni, einkum mjórri.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tvíkímblöðungar (Magnoliopsida)
Ætt (Family)
Steinbrjótsætt (Saxifragaceae)
Tegund (Species)
Bergsteinbrjótur (Saxifraga paniculata)