Einir (Juniperus communis)

Útbreiðsla

Einirinn er fremur algengur um nær allt landið, þó er lítið af honum í Húnavatnssýslum, Rangárvallasýslu og í Skaftafellssýslu vestanverðri. Útbreiðsla hans er því nokkuð blettótt, vantar sums staðar en annars staðar algengur.

Almennt

Einir er eina barrtréð sem vex villt á Íslandi. 

Búsvæði

Mólendi, hraun, kjarr og brekkubrúnir.

Lýsing

Fremur lágvaxinn runni (30–120 sm) með nállaga blöð, eina villta barrtréð á Íslandi.

Blað

Runni með nállaga blöð, oftast jarðlægur með brúnleitan stofn, en myndar stundum upprétta runna. Blöðin eru sígræn og nállaga, nálarnar 8–12 mm á lengd, 1–2 mm breiðar, oddhvassar, íhvolfar eða grópaðar ofan en með kili að neðan, grópin er með hvítri rák eftir endilöngu.

Blóm

Blómin einkynja í sérbýli. Karlblómin mörg saman í örsmáum (2–4 mm) könglum í blaðöxlunum. Köngulblöðin móleit, þrístrend til tígullaga. Kvenblómin myndast einnig í örsmáum könglum, aðeins þrjú efstu blöð þeirra eru frjó (Hörður Kristinsson 2010).

Aldin

Aldin kvenjurtanna eru í fyrstu grænir berkönglar, sem verða síðar bláir, og nefnast þau einiber. Einiberin eru gerð af þrem efstu blöðum köngulsins sem tútna mjög út, en hin neðri eru dvergvaxin og mynda vörtu neðan á einiberinu. Það tekur um ár frá því að frævun verður þar til berin eru vaxin og eru þau þá fyrst græn á öðru ári, en ná fullum þroska á þriðja ári og verða þá dökkblá. Á fullþroskuðum berjunum má auðveldlega greina þríarma ör að framanverðu, og eru það samskeyti hinna þriggja ummynduðu fræblaða. Þegar best lætur þroskast þrjú fræ í berinu, en oft ná ekki nema eitt eða tvö þeirra þroska.

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Hörður Kristinsson og Sigurður Valur Sigurðsson. 2010. Íslenska plöntuhandbókin: blómplöntur og byrkningar (3. útgáfa, aukin og endurbætt). Mál og menning, Reykjavík.

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, 2010

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Barrviðir (Pinopsida)
Ætt (Family)
Sýprisætt (Cupressaceae)
Tegund (Species)
Einir (Juniperus communis)