Naðurtunga (Ophioglossum azoricum)

Útbreiðsla

Sjaldgæf jurt á Íslandi, vex eingöngu þar sem jarðhiti er. Hún vex hæst í 1180 m hæð á jarðhitasvæði inni í Öskju.

Búsvæði

Jarðhitasvæði. Hún getur bæði verið ein sér í leirkenndum, volgum jarðvegi eða innan um annan jarðhitagróður. Einnig getur hún vaxið utan í grasi vöxnum laugarbökkum eða volgum lækjarbökkum.

Lýsing

Lágvaxin jurt (3–10 sm) með heilrend, netstrengjótt blöð og einhliða gróaxi.

Blað

Örstuttur, uppréttur jarðstöngull með einu til þremur, sjaldan fleiri, tvískiptum blöðum sem eru djúpklofin ofan frá í laublaðkenndan og gróbæran hluta. Neðsti hluti blaðanna er hvítleitur stilkur sem er á kafi í sverðinum, en efri hlutinn er grænn og stendur aðeins 2-5 sm upp úr jörðu. Græna blaðkan er heilrend, netstrengjótt, oddbaugótt, oftast ofurlítið íhvolf eða hálfsamanbrotin, 1-3 sm á lengd, 5-10 mm á breidd.

Blóm

Gróbæri blaðhlutinn með einu, einhliða gróaxi, um 10–15 mm á lengd. Gróhirslur sitja þétt saman í tveim, 7-20 mm löngum röðum eftir endilöngu axinu.

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Válistaflokkun

VU (tegund í nokkurri hættu)

ÍslandHeimsválisti
VU NE

Forsendur flokkunar

Naðurtunga flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 5 km2.

Viðmið IUCN: D2

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.
D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Naðurtunga er á válista í hættuflokknum VU (í yfirvofandi hættu).

Válisti 1996: Naðurtunga er á válista í hættuflokknum LR (í nokkurri hættu).

Útbreiðslukort

Myndir

Heimildir

Hörður Kristinsson er höfundur staðreyndasíðna Náttúrufræðistofnunar um æðplöntur. Þær eru að megin uppistöðu byggðar á vef hans floraislands.is sem er eingöngu hægt að skoða á www.vefsafn.is . Allar upplýsingar af floraislands.is eru birtar á staðreyndasíðum Náttúrufræðistofnunar.

Hörður Kristinsson 2008. Íslenskt plöntutal. Blómplöntur og byrkningar. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 51. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_51.pdf

Paweł Wąsowicz. 2020. Annotated checklist of vascular plants of Iceland. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 57. Náttúrufræðistofnun Íslands, Garðabær. https://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_57.pdf

Höfundur

Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018

Ríki (Kingdom)
Plöntur (Plantae)
Fylking (Phylum)
Æðplöntur (Tracheophyta)
Flokkur (Class)
Tungljurtir (Psilotopsida)
Ætt (Family)
Naðurtunguætt (Ophioglossaceae)
Tegund (Species)
Naðurtunga (Ophioglossum azoricum)