Hrafnaþing á Hlemmi 2007-2008

Kreppuástand ríkir meðal sjófugla og er lundinn meðal þeirra tegunda sem eiga erfitt uppdráttar. Ljósm. Erling Ólafsson.
Hrafnaþing er heiti á fræðsluerindum Náttúrufræðistofnunar og var þetta í sjötta sinn sem það var haldið. Hrafnaþingið var með svipuðu móti og áður, en erindi voru flutt að jafnaði annan hvern miðvikudag í sal Möguleikhússins á Hlemmi frá kl. 12:15 – 13:00.
Á dagskrá vetrarins voru 13 áhugaverð fræðsluerindi um rannsóknir og athuganir innan ýmissa sérgreina náttúrufræðinnar og voru þau opin öllum.
| 7. nóv. |
Sigurður H. Magnússon, plöntuvistfræðingur NÍ | Þungmálmar og brennisteinn í mosa: áhrif álvera á Íslandi |
| 21. nóv. | Friðgeir Grímsson, jarðfræðingur | Steingerðar flórur Íslands |
| 5. des. | Freydís Vigfúsdóttir, líffræðingur NÍ | Sjófuglar í breytilegu umhverfi |
| 9. jan. |
Snorri Baldursson, forstöðumaður Upplýsingadeildar NÍ | Fyrirlestur féll niður |
| 30. jan. |
Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrufstofu NV | Berghlaupið við Morsárjökul 17. apríl 2007 |
| 6. feb. |
Þröstur Þorsteinsson, jarðeðlisfræðingur HÍ | Útbreiðsla og ákafi Mýraelda 2006 |
| 20. feb. |
Lilja Karlsdóttir, líffræðingur HÍ | Birkifrjókorn - Má lesa sögu erfðablöndunar ilmbjarkar og fjalldrapa úr jarðvegi? |
| 27. feb. | Jónatan Þorvaldsson, sérfræðingur | Skrímsli |
| 5. mars |
Guðrún Gísladóttir, prófessor HÍ | Áhrif jarðvegsrofs á kolefnisbúskap og landgæði |
| 26. mars |
Tómas Grétar Gunnarsson, Háskólasetrið á Snæfellsnesi | Vaðfuglar og votlendi |
| 2. apríl | Guðmundur A. Guðmundsson, dýravistfræðingur NÍ | Á varpstöðvum margæsa á 80° norðlægrar breiddar |
| 16. apríl |
Gróa Valgerður Ingimundardóttir, líffræðingur NÍ | Vorblóm (Draba) á Íslandi |
| 30. apríl |
Fyrirlestur féll niður |