Búrfellshraun
– Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing

Guðmundur Kjartansson
Málþingið verður haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar Íslands að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ. Það stendur frá kl. 13:15 til 16:15 og að því loknu verður farið að Bala, á bæjamörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar og neðan Hrafnistu, þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Hafnarfjarðar, kynna sameiginlegt verkefni.
Að málþinginu standa Garðabær og Hafnarfjarðarbær, félagið Hraunavinir og Náttúrufræðistofnun Íslands.
Dagskrá:
- Búrfellshraun og eldstöðvakerfi Krýsuvíkur. Kristján Jónasson jarðfræðingur
- Guðmundur Kjartansson og störf hans. Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur
- Faðir minn, Guðmundur Kjartansson. Solveig Guðmundsdóttir
- Örnefni í hraunalandslagi (Búrfellshraun) – hvaða máli skipta þau? Reynir Ingibjartsson og Jónatan Garðarsson
- Fornminjar í Búrfellshrauni. Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur
- Verndun Búrfellshrauns. Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar
- Ógnir við hraun. Sigmundur Einarsson jarðfræðingur
Málþingsstjóri: Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi ráðherra.
Aðgangur er ókeypis en æskilegt að skrá sig hjá Náttúrufræðistofnun Íslands í síma 5 900 500.