Rjúpur
á Vísindavöku
Á sýningunni voru veggspjöld með almennum upplýsingum um rjúpur, vöktun rjúpnastofnsins, tengsl fálka og rjúpu og sníkjudýr í rjúpum. Rjúpur í sumar- og vetrarbúningi voru til sýnis, auk fálka. Gestir fengu að spreyta sig í að aldursgreina rjúpur á vængjum og myndum í tölvu. Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur var á staðnum og svaraði spurningum áhugasamra.
Hægt er spreyta sig á vefsíðunni Prófaðu að aldurs- og kyngreina rjúpur!
Í tilefni af Vísindavöku gaf Náttúrufræðistofnun út bæklinginn Rjúpur þar sem finna má ýmsar upplýsingar um íslenskar rjúpur og rannsóknir á þeim.
Að neðan má sjá myndir frá sýningarbás Náttúrufræðistofnunar.



