Hnignun skóg- og kjarrlendis í Þjórsárdal á Hrafnaþingi
Fyrsta Hrafnaþing vetrarins verður haldið kl. 9:15 að morgni miðvikudagsins 15. október.
Þá mun Friðþór Sófus Sigurmundsson doktorsnemi við Háskóla Íslands flytja erindi sem nefnist „Hnignun skóg- og kjarrlendis í Þjórsárdal frá 1587 til 1938“.
Erindið fjallar um rannsókn á útbreiðslu birkiskóga í Þjórsárdal í gegnum aldirnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar er tvíþætt, að:
- kortleggja útbreiðslu birkiskóga og kjarrlendis í Þjórsárdal á 350 ára tímabili
- meta áhrif náttúrulegra, félags- og efnahagslegra þátta á útbreiðsluna á þremur tímabilum, 1587-1708, 1708-1880 og 1880-1938
Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð.
Hrafnaþing er opið öllum. Verið velkomin á Hrafnaþing!