Brennisteinsfjöll - hæðarlíkan
Fjall/fjöll vikunnar eru Brennisteinsfjöll en á visitreykjanes.is segir "Brennisteinsfjöll eru hryggur móbergsfjalla frá síðari hluta ísaldar. Efst er hraundyngjan Kistufell. Í fjöllunum eru nokkrar gossprungur með gígaröðum sem mynduðust einhverju fyrir landnám. Í norðanverðum Brennisteinsfjöllum er háhitasvæði og þar var numinn brennisteinn í kringum 1880 með litlum árangri."
Hér má skoða þrívíddarlíkan af Brennsisteinsfjöllum, stækka, snúa og hvolfa.
Hér má skoða kort af svæðinu, en við það hefur verið bætt lögum sem sýna nútímahraun, borholur og gíga en auðvelt er að bæta við lögum í flipanum KORTALÖG.