Breytingar á útgáfutíðni IS 50V
Gerðar hafa verið breytingar á tíðni útgáfu IS 50V kortagrunnsins. Áður voru tvær útgáfur á ári á flestum lögum grunnsins en nú verður útgáfum ákveðinna laga fjölgað en annara fækkað.
Í dag kom ný útgáfa af örnefnum á niðurhalssíðu LMÍ og markar sú útgáfa breytingar í þá átt að nú munu örnefni koma út fjórum sinnum á ári. Sú útgáfa sem er aðgengileg í vefþjónustum LMÍ eða vefsjám er þó uppfærð vikulega.
Hér má sjá yfirlit yfir tíðni útgáfu á lögum IS 50V
| Heiti lags | Vefþjónustur, vefsjár | Gögn til niðurhals |
| Örnefni | Vikulega | Á þriggja mánaða fresti |
| Mannvirki | Á þriggja - sex mánaða fresti | Árlega |
| Mörk | Þegar breytingar verða | Þegar breytingar verða |
| Samgöngur | Á þriggja mánaða fresti | Árlega eða tvisvar á ári |
| Vatnafar | Þegar breytingar verða | Þegar breytingar verða |
| Strandlína | Þegar breytingar verða | Þegar breytingar verða |
| Hæðargögn | Þegar breytingar verða | Þegar breytingar verða |