Skip to main content
search

Starf í boði: Sérfræðingur landupplýsinga

Laust er til umsóknar starf sérfræðings á fagsviði landupplýsinga hjá Landmælingum Íslands. Mikilvægi landupplýsinga eykst stöðugt og vantar okkur reynslumikinn og áhugasaman einstakling sem er tilbúinn til að taka þátt í þróun á nýjungum á því sviði. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af verkefnastjórn á sviði öflunar og samtenginga landupplýsinga og hafa góða þekkingu á vinnslu þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

 

  • Vinna við gerð og viðhald landfræðilegra gagnagrunna um Ísland
  • Leiða vinnu við uppfærslu landupplýsinga í samstarfi við fagstjóra
  • Samskipti við notendur gagna
  • Öflun gagna með fjölbreyttum aðferðum
  • Innleiðing á lausnum byggðum á opnum hugbúnaði

Hæfniskröfur

 

  • Háskólamenntun á sviði raunvísinda eða annarra greina sem nýtist í starfi
  • Víðtæk starfsreynsla við vinnslu landupplýsinga
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Víðtæk þekking á notkun landupplýsingakerfa, einkum, Qgis og Arcgis
  • Þekking á OGC vefþjónustum og stöðlum er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulögðum vinnubrögðum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið frá og með 1. september 2021. Búseta á Akranesi er kostur en hjá stofnuninni er fjarvinnustefna og eru tækifæri til fjarvinnu hluta vikunnar.

Landmælingar Íslands eru 25 manna ríkisstofnun staðsett á Akranesi. Meginhlutverk stofnunarinnar er að sinna landmælingum, vinnslu og miðlun landupplýsinga og leiða uppbyggingu grunngerðar fyrir stafrænar landupplýsingar á Íslandi.

Smelltu hér til að sækja um starfið