Ný skýrsla á vegum Bernarsamningsins um notkun framandi ágengra trjátegunda í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum

Skýrslan var unnin af sérfræðingahópi Bernarsamningsins um ágengar framandi tegundir. Í henni er gefið yfirlit yfir aðgerðir sem viðhafðar eru í þeim tilgangi að sporna við loftslagsbreytingum, greint frá áhættu í tengslum við notkun ágengra framandi trjátegunda til að berjast gegn loftslagsbreytingum og farið yfir meginreglur sem ættu að liggja að baki framtíðaraðgerðum í þessum málaflokki.
Mikilvægustu atriðin sem hafa þarf í huga eru eftirfarandi:
- Forgangsraða þarf verndun náttúrulegra og gamalgróinna skóga sem eftir eru. og sem og öðrum gerðum skóglendis. Einnig öðrum gerðum landgerða eins og votlendis, mólendis og graslendis.
- Vernda þarf núverandi skóg og gera fullnægjandi ráðstafanir til að greina og draga úr hættu á neikvæðum áhrifum lífrænna og ólífrænna þátta, þar með talið eldhættu.
- Endurheimta röskuð náttúruleg vistkerfi skóga, forðast plöntun trjáa í náttúrulegum búsvæðum eins og í votlendi, mólendi, graslendi, og forgangsraða svæðum sem hafa mikið verndargildi.
- Afnema styrki og aðra hvata til aðgerða sem leiða til hnignunar náttúrulegra vistkerfa og umbreytingar hvers kyns landgerða yfir í skógræktarsvæði.
- Nauðsynlegt er að muna að venjulega tekur það verulegan tíma frá gróðursetningu trjáa þar til ágengni þeirra kemur fram. Rannsóknir um allan heim staðfesta þetta.
- Beita varúðarreglunni og ströngum skilyrðum til verndar líffræðilegum fjölbreytileika í öllum umfangsmiklum skógræktarverkefnum og endurheimt skóga.
- Við skógrækt skal stuðla að notkun innlendra trjátegunda og tegunda sem eru í hættu.
Á fundi fastanefndar Bernarsamningsins var rætt um skýrsluna og verður hún líklega samþykkt á næsta fundi nefndarinnar 2022.