Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands 2022
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldinn á Hótel Hamri, Borgarnesi, miðvikudaginn 28. september kl. 13:30–17:00. Fundinum verður streymt á Teams.
Fundarstjóri er Snorri Sigurðsson. Dagskrá er eftirfarandi:
13:30 Setning fundar.
13:40 Ávarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
14:00 Ávarp forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, Eydís Líndal Finnbogadóttir.
14:10 Ávarp stjórnarformanns Náttúrustofu Austurlands, Líneik Anna Sævarsdóttir.
14:20 Kynningar á verkefnum Náttúrufræðistofnunar Íslands
- Nýr frjókornagreinir. Ewa Maria Przedpelska-Wasowicz.
- Loftljósmyndastofa. Birgir Vilhelm Óskarsson.
- DNA-greiningar. Guðný Vala Þorsteinsdóttir.
15:20 Kaffihlé.
15:40 Kynningar á verkefnum náttúrustofa.
- Breytingar á burðarsvæðum Snæfellshjarðar 2005–2020. Rán Þórarinsdóttir, Náttúrustofu Austurlands.
- Fuglar og vindmyllur: rannsóknir og mat á áhrifum. Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Náttúrustofu Norðausturlands.
- Áhrif kísilstyrks á grunnsjávarvistkerfi við Suðurland. Erpur Snær Hansen, Náttúrustofu Suðurlands.
- Skúmur í útrýmingarhættu? Lilja Jóhannesdóttir, Náttúrustofu Suðausturlands.
- Sindraskel: nýr landnemi. Sindri Gíslason, Náttúrustofu Suðvesturlands.
- Varpárangur kría á Vestfjörðum. Sigurlaug Sigurðardóttir, Náttúrustofu Vestfjarða.
- Örplast í náttúru Íslands: vöktun og greining. Valtýr Sigurðsson, Náttúrustofu Norðurlands vestra.
- Lítil rándýr sem vísar á umhverfisbreytingar. Róbert A. Stefánsson og Menja von Schmalensee, Náttúrustofu Vesturlands.
Vinsamlega athugið að móttaka stofnunarinnar verður lokuð dagana 28. og 29. september vegna ársfundarins og vinnufundar starfsfólks.