Náttúrufræðistofnun auglýsir eftir jarðfræðingi
Náttúrufræðistofnun óskar eftir að ráða jarðfræðing í 100% starf til að vinna við kortlagningu og rannsóknir á jarðgrunni landsins, með áherslu á skriðuföll og ísaldarjarðfræði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Vinna við verkefnið Kortlagning skriðufallasvæða, sem felur í sér ítarlega könnun og kortlagningu jarðgrunns á skriðufallasvæðum við byggð á landinu.
• Vinna við verkefnið Jarðgrunnur Íslands, sem felur í sér rannsóknir og jarðgrunnskortlagningu í samstarfi við aðrar stofnanir á sviði jökla- og ísaldarjarðfræði.
• Gagnaöflun, úrvinnsla og túlkun gagna, ásamt frágangi niðurstaðna í skýrslur, greinar, kortasjár og gagnagrunna stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2025.
Nánari upplýsingar um starfið.