Skip to main content
search

Ársskýrsla 2024 komin út

Náttúrufræðistofnun hefur gefið út ársskýrslu fyrir árið 2024. Þetta er fyrsta ársskýrsla sameinaðrar stofnunar og jafnframt síðasta ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.

Í skýrslunni er farið yfir helstu verkefni ársins, sameiningarferlið og framtíðarsýn nýrrar stofnunar. Einnig er rakin saga stofnananna þriggja sem nú hafa sameinast í eina heild. Þar að auki er gefið yfirlit yfir rekstur stofnunarinnar, með upplýsingum um tekjur, gjöld og stærstu kostnaðarliði.

Árið 2024 einkenndist af fjölbreyttum rannsóknum og verkefnum á sviði náttúruvöktunar, landmælinga og kortagerðar. Mikil vinna fór í undirbúning og framkvæmd sameiningar, þar á meðal samræmingu starfshátta, samþættingu gagna og mótun nýrrar ásýndar. 

Ársskýrslan er birt í vefformi sem gerir hana aðgengilega og auðvelt er að fletta á milli kafla og efnisflokka. Einnig er hægt að skoða hana í hefðbundnu pdf-formi. Skýrslan er prýdd fjölda fallegra ljósmynda sem starfsfólk stofnunarinnar hefur tekið.

Ársskýrsla 2024