Skip to main content
search

Grágæsir taldar um helgina

Grágæsir verða taldar hér á landi og á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum um komandi helgi, 22.–23. nóvember 2025. Talningin er liður í vöktun grágæsastofnsins sem hófst á vegum Wildfowl & Wetlands Trust (WWT) árið 1960 og fer nú fram á vegum British Trust for Ornithology (BTO).

Náttúrufræðistofnun óskar eftir upplýsingum um grágæsir sem fólk verður vart við hér á landi á næstu dögum, þar á meðal hvar þær sjást og áætlaðan fjölda fugla á hverjum stað. Upplýsingarnar verða sendar samstarfsaðilum hér á landi og á Bretlandseyjum sem taka saman árlegar skýrslur um talningarnar.

Í fyrra voru taldar 26.169 grágæsir hér á landi, þar af 18.860 á Suðurlandi, 355 á Suðvesturlandi, 6.350 á Norðurlandi og 604 á Austur- og Suðausturlandi.

Vinsamlegast sendið upplýsingarnar til Svenju N. V. Auhage á netfangið svenja@natt.is.