Vegir með litla umferð hafa áhrif á varpfugla á láglendi
Ný vísindagrein í tímaritinu „Journal of Avian Biology“ varpar ljósi á áhrif vega með litla umferð á útbreiðslu og fjölda varpfugla á láglendi Íslands. Niðurstöðurnar sýna að jafnvel vegir þar sem umferð er talin lítil tengjast því að færri fuglar verpa í næsta nágrenni við þá.
Rannsóknir á áhrifum vega á fugla í nærliggjandi umhverfi sýna afdráttarlaust að vegir og umferð bíla hafa neikvæð áhrif á þéttleika fugla í næsta nágrenni. Slíkar rannsóknir hafa þó ekki verið gerðar á Íslandi, þar sem umferð er lítil í alþjóðlegu samhengi og vegir minni um sig.
Rannsóknin byggir á fuglatalningum á láglendi á Suður- og Vesturlandi, þar sem fuglar voru taldir á sniðum út frá vegum með litla umferð (≤ 15.000 ökutæki á dag) sem liggja um opin búsvæði, svo sem graslendi, mólendi eða votlendi. Niðurstöðurnar sýna að heildarfjöldi fugla jókst marktækt um 6% fyrir hvert 50 m bil frá vegum og þéttleiki fugla innan 200 m frá vegum var um 20% lægri en á svæðum í 200–400 m fjarlægð frá vegum.
Í rannsókninni kom einnig fram að sumar tegundir voru viðkvæmari fyrir nálægð vega en aðrar. Spói, heiðlóa, lóuþræll og þúfutittlingur fundust í marktækt lægri þéttleika nær vegum en jaðrakan, stelkur, hrossagaukur og skógarþröstur sýndu engin áhrif af fjarlægð frá vegum.
Í greininni er jafnframt bent á að um 20% af íslensku láglendi liggi innan áhrifasvæða vega (200 m) og að vegir með tiltölulega litla umferð geti því haft veruleg áhrif á fuglalíf í nágrenninu. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að taka tillit til fuglalífs við skipulag og uppbyggingu samgöngumannvirkja, jafnvel þar sem umferð er lítil, og að meta heildaráhrif vegakerfisins á líffræðilega fjölbreytni.
Aldís Erna Pálsdóttir vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er fyrsti höfundur greinarinnar:
Pálsdóttir, A. E., Gill, J. A., Alves, J. A., Pálsson, S., Méndez, V., Þórisson, B. og Gunnarsson, T. G. (2025). Effect of low-traffic roads on abundance of ground-nesting birds in sub-Arctic habitats. Journal of Avian Biology, e03572. https://doi.org/10.1002/jav.03572