Vetrarfuglatalningar 2025
Árleg vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar fer fram helgina 27.–28. desember næstkomandi. Markmið talninganna er að kanna fjölda og dreifingu einstakra fuglategunda á mismunandi landssvæðum. Gögnin nýtast jafnframt til að meta breytingar á stofnstærð tiltekinna tegunda. Frá upphafi hafa fuglaáhugamenn gegnt lykilhlutverki í þessu verkefni og lagt því lið í sjálfboðavinnu.
Náttúrufræðistofnun hefur um áratugaskeið skipulagt fuglatalningar um áramótin. Fyrsta talningin fór fram 21. desember 1952, á stysta degi ársins, og þá var talið á tíu svæðum og er enn talið á sumum þeirra. Talningarsvæðum hefur fjölgað jafnt og þétt og nú er að jafnaði talið á yfir 200 svæðum ár hvert. Alls hefur verið talið á um 370 svæðum og samanlagður fjöldi einstakra talninga nemur nú um sjö þúsund. Svæðin eru á láglendi um allt land en flest þeirra eru við sjávarsíðuna þar sem mest er af fuglum á þessum árstíma. Heildarlengd strandlengjunnar innan talningarsvæða er um 2.000 km sem jafngildir um þriðjungi af strönd Íslands sem er 5.000–6.000 km löng.
Undanfarin ár hafa að jafnaði sést um eða yfir 80 fuglategundir í vetrarfuglatalningum. Um helmingur telst til staðfugla og vetrargesta en jafnframt koma reglulega fram ýmsir flækingsfuglar. Samtals hafa hátt á annað hundrað tegundir sést í þessum talningum. Æðarfugl hefur nær alltaf verið algengasta tegundin og sést víða með ströndum landsins.
Á þeim 73 árum sem liðin eru frá upphafi vetrarfuglatalninga hafa orðið umtalsverðar breytingar á fuglafánu Íslands. Á þessum tíma hafa meðal annars starar og svartþrestir náð hér fótfestu sem dvelja yfir vetrarmánuðina en virðast ekki vera farfuglar í neinum mæli.
Niðurstöður vetrarfuglatalninga 2002–2024
Á vef Náttúrufræðistofnunar er að finna kortasjá sem sýnir talningasvæði vetrarfuglatalninga. Hægt er að þysja inn á kortið og skoða einstök svæði nánar. Kortasjáin er í vinnslu. Talningasvæði sem liggja ekki með strandlengjunni eru að svo stöddu einungis sýnd með svæðisnúmeri á kortinu en nánari afmörkun þeirra er væntanleg. Einnig er gert ráð fyrir að frekari upplýsingar og niðurstöður fyrir hvert svæði birtist í sprettigluggum.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í vetrarfuglatalningum helgina 27.–28. desember geta sett sig í samband við Svenju N.V. Auhage. Hún veitir einnig nánari upplýsingar um talningarnar, skipulag þeirra og einstök talningarsvæði.