11. desember 2024. Ingibjörg Smáradóttir: Myrkurgæði, hvað er nú það?

Ingibjörg Smáradóttir, skjalastjóri hjá Náttúrufræðistofnun flytur erindið „Myrkurgæði, hvað er nú það?” á Hrafnaþingi miðvikudaginn 11. desember 2024 kl. 15:15.
Erindið verður flutt í Krummasölum, fundarherbergi Náttúrufræðistofnunar á 3. hæð í húsnæði stofnunarinnar í Urriðaholti, Garðabæ. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams á netinu.
Í erindinu verður fjallað um rannsóknir tengdar myrkurgæðum og áhrif ljósmengunar á umhverfið.
Myrkurgæði vísa til þess hversu lítið ljós er til staðar á ákveðnu svæði, sem gerir það auðveldara að sjá stjörnurnar og næturhimininn. Þetta hugtak er oft notað í samhengi við ljósmengun, sem er þegar óþarfa eða óviðeigandi ljós truflar náttúrulegt myrkur. Góð myrkurgæði eru mikilvæg fyrir ýmsa hópa, eins og stjörnufræðinga, náttúruunnendur og ferðamenn, en sýn á stjörnuhimnininn og norðurljósin verða betri ef það eru góð myrkurgæði. Einnig stuðla góð myrkurgæði að heilbrigðari vistkerfum þar sem dýr og plöntur geta fylgt náttúrulegum dægursveiflum sínum án truflana frá ljósum.
Ljósmengun getur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar, bæði fyrir umhverfið og heilsu manna, dýra og plantna en ljósmengun gerir það að verkum að það er erfiðara að sjá stjörnuhimininn. Margar tegundir dýra, sérstaklega farfuglar, verða fyrir áhrifum af ljósmengun. Einnig getur ljósmengun haft áhrif á svefn og heilsu manna en auk þess eykur óþarfa lýsing orkunotkun og þar með kostnað og umhverfisáhrif.