21. október 2026. Petra Dimitrova Toneva: Automated mapping of invasive lupine in Iceland
Petra Dimitrova Toneva flytur erindið „Automated mapping of invasive lupine in Iceland“ á Hrafnaþingi 21. október 2026 kl. 10:15.
Erindið verður flutt á ensku í starfsstöð Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6–8, Garðabæ. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams á netinu.
Summary
Alaska lupine (Lupinus nootkatensis) is an invasive species introduced to Iceland in the 1940s and is currently estimated to cover 314 km² of the country. Monitoring lupine distribution is important for understanding and managing its spread, but updating distribution maps manually is time-consuming, particularly across large areas.
This talk will present the outcomes of a three-month summer project carried out by Petra Toneva, a recent graduate from the University of Iceland, who developed an automated approach for mapping Alaska lupine using aerial and satellite imagery, spectral information and machine learning. The aerial imagery model performed best for large, dense lupine patches, while forests and grasslands were more difficult to distinguish due to similar spectral characteristics. The Sentinel-2 model was less accurate, particularly for smaller or less distinct patches.
The results show that high-resolution aerial imagery can support a more efficient approach to updating lupine distribution maps despite notable limitations. The automated workflow can produce an initial map that an analyst can review and correct, potentially reducing the need to manually delineate lupine stands from scratch and making regular monitoring more feasible. The project was funded by the Rannís Student Innovation Fund.
Útdráttur
Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis) er ágeng framandi tegund sem var flutt til Íslands á fimmta áratug síðustu aldar og er nú talin þekja um 314 km² lands. Vöktun er mikilvæg til að skilja útbreiðslu hennar og leggja grunn að aðgerðum til að takmarka hana. Það er hins vegar tímafrekt að uppfæra útbreiðslukort með handvirkum aðferðum, sérstaklega þegar um stór landsvæði er að ræða.
Í erindinukynnir Petra Toneva, sem lauk nýverið námi við Háskóla Íslands, niðurstöður sumarverkefnis sem hún vann að í þrjá mánuði. Í verkefninu þróaði hún sjálfvirka aðferð til að kortleggja alaskalúpínu með vélanámi, loftmyndum og gervitunglamyndum, meðal annars út frá því hvernig gróður endurkastar ljósi á mismunandi bylgjulengdum. Líkanið sem byggði á loftmyndum greindi best stórar og þéttar lúpínubreiður. Erfiðara reyndist að greina lúpínu frá skógi og graslendi vegna þess hve svipað þessar gróðurgerðir endurkasta ljósi. Líkanið sem byggði á Sentinel-2-gervitunglamyndum var ónákvæmara, einkum við greiningu minni eða ógreinilegri lúpínufláka.
Niðurstöðurnar sýna að loftmyndir í hárri upplausn geta nýst til að uppfæra útbreiðslukort lúpínu á skilvirkari hátt, þótt aðferðin hafi enn talsverðar takmarkanir. Með sjálfvirkri úrvinnslu má gera drög að útbreiðslukorti sem sérfræðingur fer síðan yfir og leiðréttir. Þannig mætti draga úr þörfinni á að teikna mörk lúpínubreiða handvirkt frá grunni og auðvelda reglubundna vöktun. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna hjá Rannís.