Skip to main content
search

25. nóvember 2026. Lovísa Ásbjörnsdóttir og Hreggviður Norðdahl: Forn fjörumörk á Íslandi. Kortlagning, vernd og nýting

Lovísa Ásbjörnsdóttir og Hreggviður Norðdahl flytja erindið „Forn fjörumörk á Íslandi. Kortlagning, vernd og nýting“ á Hrafnaþingi 25. nóvember 2026 kl. 10:15.

Erindið verður flutt í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6–8, Garðabæ. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams á netinu. 

Styrkur fékkst úr Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar til að kortleggja forn fjörumörk á Íslandi. Verkefnið er tilkomið vegna þarfar á heildstæðu yfirliti og samræmdri kortlagningu þessara fornu landforma og jarðmyndana þeim tengdum, en þau gefa greinargóðar upplýsingar um legu efstu fjörumarka og þar með legu sjávarborðs á síðjökultíma, fyrir um 15.000 og 10.000 árum. Á síðustu tímum hefur ásókn aukist í þessar jarðmyndanir til efnistöku þar sem efnið er aðgreint og frostfrítt og því hentugt til margs konar mannvirkjagerðar. Af þeim sökum hefur mikið af fornum fjörumyndunum eyðst eða þeim verið verulega og varanlega raskað. Því þótti einnig brýnt að hluti verkefnisins fjallaði um mat á verndargildi þeirra fornu fjörumarka, sem vegna vísindagildis, fræðslugildis, samfellu og/eða formfegurðar, skyldu varðveitt.

Í tengslum við verkefnið hefur verið safnað saman rituðum heimildum, vísindagreinum og kortum varðandi forn fjörumörk á Íslandi. Kort og GPS-mælingar, sem hafa verið birtar í vísindagreinum eru flutt inn í landupplýsingakerfið. Í gagnagrunn landupplýsinga eru skráðar upplýsingar um landform, hæð yfir sjó, heimildir, verndargildi og rask. Vettvangsferðir, sem eru mikilvægur hluti verkefnisins, voru notaðar til að kortleggja fjörumörk og til að meta verndargildi þeirra, sérstaklega á þeim svæðum þar sem litlar eða takmarkaðar rannsóknir hafa verið gerðar. Styrkur úr Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar gerði kleift að farnar voru nokkrar vettfangsferðir á árunum 2024 og 2025 til að bæta upplýsingar um fjörumörk.

Niðurstöður verkefnisins eru í Kortaglugga Náttúrufræðistofnunar og landupplýsingagögn aðgengileg um kortaþjónustur.