Skip to main content
search

26. febrúar 2025. Starri Heiðmarsson: Íslenskar fléttur og viðhengi, talin og skráð í fléttutali

Starri Heiðmarsson fléttufræðingur hjá Náttúrustofu Norðurlands vestra flytur erindið „Bleðlapíra, fjallagrös og breyskjuríla, íslenskar fléttur og viðhengi, talin og skráð í fléttutali“ á Hrafnaþingi 26. febrúar 2025 kl. 15:15. 

Erindið verður flutt í Krummasölum, fundarherbergi Náttúrufræðistofnunar á 3. hæð í húsnæði stofnunarinnar í Urriðaholti, Garðabæ. Það verður einnig flutt í beinni útsendingu á Teams á netinu.
 

Fléttutal er listi yfir fléttur og fléttuháða sveppi sem vitað er til að finna megi á Íslandi. Útgáfa listans er mikilvægur áfangi í flétturannsóknum á Íslandi og byggir á ævistarfi Harðar Kristinssonar sem hóf að taka listann saman snemma á áttunda áratug síðustu aldar.

Fléttufunga Íslands er fjölbreytt, listinn telur rúmlega 800 fléttutegundir og rétt um 140 tegund fléttuháðra sveppa auk þess sem tilteknar eru nokkrar undirtegundir og afbrigði. Ríflega helmingur íslenskra fléttna eru steinvaxandi, þriðjungur þeirra vex á jarðvegi og um 12% eru ásætur á trjám og runnum en viðbúið er að fjölga muni í þeim hópi með aukinni útbreiðslu skóga.

Fjallað verður um tilurð listans, fjölbreytni fléttufungu Íslands borin saman við nágrannalöndin og stuttlega gerð grein fyrir flokkun íslenskra fléttna og þróunarsögu. Einnig verður boðið upp á heimspekilegar vangaveltur um eðli fléttusambýlisins.