Skip to main content
search

26. nóvember 2025. María Helga Guðmundsdóttir: Uppbygging stafrænna innviða fyrir borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar

María Helga Guðmundsdóttir jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun flytur erindið „Uppbygging stafrænna innviða fyrir borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar“ á Hrafnaþingi sem haldið verður á netinu 26. nóvember 2025 kl. 15:15.

Borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar varðveitir borkjarna og svarf úr yfir 4.000 borholum vítt og breitt um landið og gerir aðgengileg til rannsókna. Safnkosturinn samanstendur af um 100 km af borkjarna og svarfi úr holum sem samtals eru um 470 km að lengd. Safnið er starfrækt á Breiðdalsvík í nánu samstarfi við rannsóknasetur Háskóla Íslands á staðnum.

Safnkostur borkjarnasafnsins er aðgengilegur sem efniviður í fræðilegar og hagnýtar rannsóknir og er hægt að óska eftir aðgangi að honum bæði til mælinga og sýnatöku. Starfsfólk borkjarnasafnsins er rannsakendum innan handar við að bera kennsl á efnivið í rannsóknir og taka sýni úr kjörnunum. Upplýsingar um safnkostinn er hægt að nálgast í Kortaglugga Íslands og í gagnagátt samevrópska verkefnisins EPOS, hvort tveggja byggt á gögnum úr vensluðum PostgreSQL-gagnagrunni safnsins.

Uppbygging innviða við safnið miðar að því að auðvelda notendum að kynna sér safnkostinn og liðka þannig fyrir frekari rannsóknum á honum. Hefur það bæði vísindalegt og hagrænt gildi, því nýting á afurðum eldri jarðborana sparar kostnað við endurteknar boranir og gerir rannsóknir mögulegar sem erfitt væri að fjármagna ef bora þyrfti sérstaklega fyrir þær.

Undanfarin tvö ár hefur sérstök áhersla verið lögð á að ljósmynda borkjarnahluta safnsins kerfisbundið og koma þeim ljósmyndum í gagnagrunn og opna birtingu. Ljósmyndir eru mikilvæg grunngögn þegar val á sýnum fyrir rannsóknir stendur yfir, ekki síst þar sem flest sýni eru tekin af starfsfólki borkjarnasafnsins og send til þeirra sem nýta þau. Fyrsta útgáfa af slíku kerfi leit dagsins ljós vorið 2025 og eru nú myndir af um fjórðungi safnkostsins (2.415 af 10.333 kjarnakössum) aðgengilegar í gegnum Kortagluggann. Stefnt er á að ljúka ljósmyndun safnkostsins á árunum 2026 og 2027.

Fyrirlesturinn á Youtube: