Mordýr (Collembola)
Almennt
Mordýr eða stökkmor, eins og þau kallast einnig, tilheyra hópi smádýra sem finnst um heim allan og koma þau fyrir í meiri þéttleika en flest önnur smádýr. Alls eru um 3.600 tegundir þekktar í heiminum og er sú tala eflaust víðs fjarri raunverulegum fjölda. Í Evrópu finnast um 2.020 tegundir í fjórum vel aðgreindum undirættbálkum og 23 ættum.
Mordýr eru langflest mjög smávaxin jarðvegsdýr, sum ósýnileg berum augum, önnur ívið stærri en það, 0,5-5 mm á lengd. Margar tegundir eru ljósar á lit en aðrar af ýmsum litum, gulum, fjólubláum, gráum, brúnum, jafnvel mislitar. Mordýr falla flest að tveim ólíkum bolgerðum, annars vegar staflaga hins vegar kúlulaga dýr. Bolurinn er misjafnlega greinilega þrískiptur. Aftarlega á afturbolnum bera flest mordýr eitt helsta einkenni flokksins, svokallaðan stökkgaffal (furcula) sem liggur fram undir bolinn. Gaffalinn nota dýrin til að stökkva með margfalda lengd sína.
Flest mordýr eru jarðvegsdýr sem lifa í jarðvegi eða gróðursverði og gegna þar mikilvægu hlutverki í niðurbroti. Sumar tegundir lifa þó uppi í gróðrinum.
Á Íslandi er 151 tegund skráð en þær tilheyra 14 ættum.
Höfundur
Erling Ólafsson 13. febrúar 2017.