Fiskstofnar í Mývatnssveit

Tímamörk
Vöktun fiskistofna hófst með núverandi sniði árið 1986 (bleikja) og um 1989 (hornsíli) og stendur enn yfir.
Samstarfsaðilar
Háskólinn á Hólum.
Um verkefnið – Markmið og verkþættir
Markmið verkefnisins er að greina útlits- og erfðabreytileika fiska í Mývatni og nágrenni og setja í samhengi við stofnstærðir, stofnbreytingar, fæðuframboð og aðra umhverfisþætti.
Helstu verkþættir eru:
- Mývatnsbleikjan: Stofnstærð, fæða og fæðuframboð
- Riðastöðvar bleikju í Mývatni
- Hornsíli: Svæðisbundinn erfðabreytileiki og stofnstærðarferill
- Hellableikjur (gjáarlontur). Tegundamyndun og lífskilyrði
- Sníkjudýr í hornsílum og bleikju
Nánari upplýsingar
Bleikju hefur stórfækkað í vatninu á síðustu áratugum og stofninn illa þolað síendurtekin fæðuskortstímabil sem fylgja átusveiflum í vatninu. Þetta hefur haft neikvæð áhrif á tímgun og tók langan tíma að laga veiðisókn að breyttum aðstæðum. Veiðitölur ná aftur til ársins 1900 auk þess sem ítarleg frásögn er til af veiðinni á síðari hluta 19. aldar. Þessi gögn sýna stöðugleikatímabil 1922–1972 en eftir það fór bleikjuveiði hrakandi og gripið var til róttækrar sóknartakmörkunar. Vöktun frá 1986 hefur meðal annars leitt í ljós að oft er lítið af smábleikju. Loftmyndir af riðastöðvum gefa gagnlegar vísbendingar um hrygningarvirkni stofnsins.
Hornsílastofninn í Mývatni hefur verið mjög stór frá því vöktun hófst um 1989, einkum í Ytriflóa, en stofnstærðin sveiflast mikið. Rannsóknir hafa enn sem komið er ekki staðfest þá tilgátu að hornsíli éti upp mýið og knýi þannig mýsveiflurnar en nú er unnið með rannsóknatilgátur um að stór sílastofn geti fækkað í stofnum vissra mikilvægra átutegunda og þannig ýkt lífríkissveiflur, og auk þess hraðað umsetningu fosfórs í vatninu og hvatt þannig til blábakteríublóma.
Gjáarlontur eru smávaxin bleikjuafbrigði sem lifa í hraunhellum við Mývatn. Stofnarnir eru margir, litlir og einangraðir og hafa mikið verndargildi, einkum út frá þróunarfræðilegu sjónarmiði. Hópur tengdur Háskólanum á Hólum rannsakar erfðabreytileika og þróun gjáarlonta með tilliti til umhverfisaðstæðna. Þá er sérstakt bleikjuafbrigði í Mývatni, krús, sem brýnt er að rannsaka af sömu ástæðum.
Niðurstöður
Tengiliður
Sölvi Rúnar Vignisson, vistfræðingur.