Skip to main content
search

Vernd og skráning jarðminja

Tímamörk

Langtímaverkefni.

Um verkefnið – Markmið og verkþættir

Markmiðið með faglegu mati og skipulegri skráningu jarðminja á Íslandi er að tryggja verndun þeirra jarðminja sem endurspegla breytileika íslenskrar jarðfræði og landmótunar. Þannig verði varðveitt heildstæð mynd af jarðfræðilegum ferlum og fyrirbærum ásamt samfelldu yfirliti um jarðsögu landsins. Jafnframt er stefnt að því að tryggja varðveislu jarðminja sem hafa sérstakt vísindalegt verndargildi eða aðra eiginleika sem geta talist forsenda verndunar, svo sem sögulegt gildi, stærð og fegurð. 

Faglegri jarðminjavernd er þannig ætlað að ná til allra þátta berg- og jarðgrunnsins ásamt myndun og mótun yfirborðs í fortíð og nútíð. Áhersla er lögð á að meta verndargildi jarðminja út frá viðmiðum náttúruverndarlaga nr. 60/2013. 

Skipuleg skráning jarðminja nýtist við gerð skipulags- og verndaráætlana, við fræðslu um vernd jarðminja innan stjórnsýslunnar og meðal almennings og í alþjóðlegum samskiptum um vernd jarðminja.

Nánari upplýsingar

Vernd jarðminja

Niðurstöður

Lovísa Ásbjörnsdóttir og Ingvar Atli Sigurðsson. (2024). Áhugaverðar jarðminjar á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar (Skýrsla NÍ-24004). Náttúrufræðistofnun. https://utgafa.ni.is/skyrslur/2024/NI-24004.pdf

Askew, R. A., Ásbjörnsdóttir, L. og Sigurðsson, I. A. (2024). The Mid-Atlantic Ridge on Reykjanes Iceland. Í G. Lozano, L. Carcavilla, S. Finney, A. Hilario, J. Vegas, B. Van Wyk de Vries og J. Zhang (ritstj.), The second IUGS geological heritage sites (bls. 178–179). International Union of Geological Sciences. http://hdl.handle.net/10261/379724

Lovísa Ásbjörnsdóttir, Ingvar Atli Sigurðsson og Snorri Sigurðsson. (2023, 9. maí). Jarðminjaskráning [Erindi]. Kynningarfundur, Náttúrufræðistofnun Íslands.

Zwoliński, Z. og Mazurek, M. (2024). Vatnajökull Iceland. Í G. Lozano, L. Carcavilla, S. Finney, A. Hilario, J. Vegas, B. Van Wyk de Vries og J. Zhang (ritstj.), The second IUGS geological heritage sites (bls. 252–253). International Union of Geological Sciences. https://iugs-geoheritage.org/publications-dl/IUGS-SECOND-100-SITES-WEB-BOOK.pdf

Ingvar A. Sigurðsson og Robert A. Askew. (2023). Úttekt á jarðminjum í Hverahlíð II og Meitlum á Hellisheiði (Skýrsla NÍ-23009). Unnið fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. https://utgafa.ni.is/skyrslur/2023/NI-23009.pdf

Lovísa Ásbjörnsdóttir og Ingvar Atli Sigurðsson. (2022). Geoheritage in Iceland, an inventory and assessment [Ágrip]. Í Þorsteinn Sæmundsson, Ásta Rut Hjartardóttir, Bjarni Gautason og Halldór Geirsson (ritstj.), The 35th Nordic Geological Winter Meeting 2022: Programme and abstracts (bls. 126–127). https://jfi.is/wp-content/uploads/2022/05/NGWM-2022.pdf

Lovísa Ásbjörnsdóttir og Ingvar Atli Sigurðsson. (2020). Rauðhólar í Heiðmörk. NÍ-20009. Unnið fyrir Reykjavíkurborg. Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2020/NI-20009.pdf [skoðað 10.6.2021]

Olga Kolbrún Vilmundardóttir, Ester Rut Unnsteinsdóttir, Ingvar Atli Sigurðsson, Lovísa Ásbjörnsdóttir og Trausti Baldursson. (2020). Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár: samantekt um viðbótartillögur fyrir fossa og selalátur. NÍ-20008. Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2020/NI-20008.pdf [skoðað 10.6.2021]

Lovísa Ásbjörnsdóttir. (2019). Jarðminjaskráning. Í María Harðardóttir og Magnús Guðmundsson, ritstj. Ársskýrsla 2018, bls. 12–13.  Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/Arsskyrslur/NI_Arsskyrsla_2018.pdf [skoðað 10.6.2021]

Lovísa Ásbjörnsdóttir og Sigríður María Aðalsteinsdóttir. (2019). Frumrannsókn á trjábolaförum í Ófeigsfirði (pdf, 9,4 MB). NÍ-19009. Unnið fyrir Landsvirkjun. Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2019/NI-19009.pdf [skoðað 10.6.2021]

Kristján Jónasson, Rannveig Thoroddsen, Járngerður Grétarsdóttir, Borgný Katrínardóttir, Svenja N.V. Auhage og Sigmar Metúsalemsson. (2019). Úttekt á náttúrufari við Stóru-Sandvík á Reykjanesskaga. NÍ-19013. Unnið fyrir Landsvirkjun. Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2019/NI-19013.pdf [skoðað 18.6.2021]

Olga Kolbrún Vilmundardóttir, Ásrún Elmarsdóttir, Borgþór Magnússon, Guðmundur Guðmundsson, Ingvar Atli Sigurðsson, Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Kristján Jónasson, Lovísa Ásbjörnsdóttir, Marianne Jensdóttir Fjeld, Sigmar Metúsalemsson, Starri Heiðmarsson, Sunna Björk Ragnarsdóttir, Þóra Hrafnsdóttir og Trausti Baldursson. (2019). Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár 2018: svæðaval og ávinningur verndar. NÍ-19008. Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2019/NI-19008.pdf [skoðað 18.6.2021]

Sigríður María Aðalsteinsdóttir og Lovísa Ásbjörnsdóttir. (2019). Áhugaverðar jarðminjar við Kröflu og Þeistareyki.  NÍ-19006. Unnið fyrir Landsvirkjun. Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2019/NI-19006.pdf [skoðað 18.6.2021]

Lovísa Ásbjörnsdóttir. (2016). Áhugaverðar jarðminjar á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu (pdf, 9,4 MB). NÍ-16004. Unnið fyrir Landsvirkjun. Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2016/NI-16004.pdf [skoðað 10.6.2021]

Lovísa Ásbjörnsdóttir og Kristján Jónasson. (2015). Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík um jarðminjar og vernd þeirra. Náttúrufræðingurinn 85(3–4): 161–162. https://timarit.is/page/6780544#page/n68/mode/2up [skoðað 10.6.2021]

Lovísa Ásbjörnsdóttir, Sigmundur Einarsson og Kristján Jónasson. (2012). Iceland. Í Wimbledon, W.A.P. og S. Smith-Meyer, ritstj. Geoheritage in Europe and its conservation, bls. 170–179. ProGEO.

Sigmundur Einarsson, Kristján Jónasson og Lovísa Ásbjörnsdóttir. (2012). Landið var fagurt og frítt. Um vernd jarðminja. Náttúrufræðingurinn 82(1–4): 151–159. https://timarit.is/page/6469043#page/n150/mode/2up [skoðað 10.6.2021]

Kristján Jónasson og Sigmundur Einarsson. (2009). Jarðminjar á háhitasvæðum Íslands. Jarðfræði, landmótun og yfirborðsummerki jarðhita (pdf). NÍ-09012. Náttúrufræðistofnun Íslands. https://utgafa.ni.is/skyrslur/2009/NI-09012.pdf [skoðað 10.6.2021] Kortahefti 

Helgi Torfason og Ingvar Atli Sigurðsson. (2002). Verndun jarðminja á Íslandi. Tillögur vegna náttúruverndaráætlunar 2002. NÍ-02019.  Náttúrufræðistofnun Íslands. https://utgafa.ni.is/skyrslur/2002/NI-02019.pdf [skoðað 10.6.2021]

Tengiliður

Lovísa Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur og Nína Aradóttir jarðfræðingur.