Gæðastefna
Gæðastefnan lýsir áherslum Náttúrufræðistofnunar (NÁTT) á gæðum vinnu og þjónustu og að þjónusta stofnunarinnar sé í samræmi við væntingar viðskiptavina, samstarfsaðila og starfsfólks. Með gæðastefnunni vill NÁTT tryggja stöðugar umbætur í starfsemi stofnunarinnar.
Aðalmarkmið NÁTT er að vera öflug og traust stofnun sem gegnir lykilhlutverki í að uppfylla þarfir samfélagsins fyrir grunnupplýsingar um Ísland. Stofnunin veitir góða og faglega þjónustu sem byggir á heilindum starfsfólks og gagnkvæmu trausti milli allra aðila.
Í starfsemi stofnunarinnar er lögð áhersla á hagkvæmni með það í huga að það bitni sem minnstá gæðum þeirra verkefna sem henni ber að sinna samkvæmt lögum. Viðurkenndar aðferðir gæðastjórnunar eru nýttar og starfsfólk tekur virkan þátt í stöðugum umbótum.
Starfsfólki er tryggt gott vinnuumhverfi og hvatning í starfi, auk þess sem sérstök áhersla er lögð á að viðhalda og efla fagþekkingu þess. NÁTT fylgir lögum og reglugerðum sem varða verkefni stofnunarinnar og öllum samningum sem stofnunin er aðili að, er fylgt.
Gæðastefnan tekur til allrar vinnu sem unnin er í nafni NÁTT hvort sem er við öflun og vinnslu gagna, varðveislu og miðlun landfræðilegra upplýsinga eða aðra starfsemi.
Stjórnendur NÁTT gera sér grein fyrir að gæðamál eru stöðugt á dagskrá og vanda þarf til verka við úrlausn þeirra. Innleiðing og framkvæmd stefnunnar er mikilvæg til að fullvissa starfsfólk, samstarfsaðila og viðskiptavini NÁTT um áherslur í gæðamálum.
Verkþættir
- Stofnunin setur fram virka gæðastefnu og handbók þar sem haldið er utan um stjórnskipulag NÁTT, þar á meðal verklagsreglur, leiðbeiningar og önnur skjöl sem tilheyra.
- Gæðahópur er virkur og starfandi. Hópurinn hefur það hlutverk að innleiða gæðahugsun í starfsemi stofnunarinnar sem endurspeglast í stefnu þessari. Hópurinn fjallar einungis um gæðamál.
- Starfsfólk NÁTT fylgir Gæðahandbókinni og öðrum fyrirmælum stjórnenda stofnunarinnar í störfum sínum.
- Regluleg kynning á stöðu gæðamála á starfsmannafundum í þeim tilgangi að starfsfólk NÁTT sé upplýst, fái fræðslu varðandi gæðamál og geri sér grein fyrir ábyrgð þeirra hvað gæðamál varðar.
- Í öllu starfi verði framtíðarsýn NÁTT höfð að leiðarljósi: Náttúrufræðistofnun er í fremstu röð sem ábyrg vísinda- og fræðastofnun, þar sem vöktun og rannsóknir á náttúru Íslands og áreiðanlegar landupplýsingar skapa grundvöll þekkingar í þágu samfélagsins.
Dags. 20.10.2025