Vafrakökustefna
Náttúrufræðistofnun (NÁTT) er rannsóknarstofnun sem starfar samkvæmt lögum nr. 54/2024 og er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer af hálfu stofnunarinnar. NÁTT notar vafrakökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni. Vafrakökur eru litlar textaskrár sem vistaðar eru í tölvu notandans og eru notaðar til að muna stillingar, safna tölfræðilegum gögnum og birta sérsniðið markaðsefni. Notendur geta stjórnað vafrakökum í vafranum sínum og samþykkt eða hafnað notkun þeirra. Vafrakökustefnan er uppfærð reglulega til að tryggja öryggi og persónuvernd notenda. Lög um vafrakökur eru hluti af persónuverndarlöggjöf sem tryggir að vefsíður fái leyfi notenda áður en þær geyma eða safna upplýsingum um vafrakökur.
Notkun vafrakaka
Þegar farið er inn á heimasíðu NÁTT er vafrakaka send til vefþjónsins þar sem síðan er vistuð. Fótspor eða vafrakökur frá fyrsta aðila (e. first-party cookies) koma frá sama léni og vefsíðan sem er heimsótt (í þessu tilviki natt.is), á meðan fótspor eða vafrakökur frá þriðja aðila (e. third-party cookies) eru fótspor sem koma frá öðrum lénum. Vafrakökur eru t.d. notaðar til þess að notandi þurfi ekki að slá inn notendanafn eða lykilorð í hvert sinn sem hann heimsækir vefsíðu sem hann hefur áður skráð sig inn á. Þær má einnig nota til þess að greina heimsóknir á vefsíðuna s.s. eftir IP-tölum. Aðrar vefsíður geta ekki lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í vafrakökunni. Vafrakökur er innbyggðar í það vefumsjónarkerfi sem NÁTT notar. Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum netvöfrum þannig að þeir taki ekki á móti vafrakökum. Einnig er hægt að eyða vafrakökum með einföldum hætti.
NÁTT notar Google Analytics til vefmælinga. Þegar notandi kemur inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, s.s. tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið, og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans. Meðhöndlun upplýsinga í vafrakökum Google er háð reglum Google um persónuvernd. Notendur vefsins geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af fótsporum eða hafni þeim alfarið. Leiðbeiningar má jafnan fá á vefjum veffyrirtækjanna. Vefurinn er hýstur hjá 1xInternet í Þýskalandi sem er með alþjóðlega öryggisvottun (ISO 27001).
Flokkar vafrakaka
Vafrakökur eru nauðsynlegar til að vefsíðan virki rétt og til að bæta virkni og frammistöðu vefsíðunnar. Vafrakökur geta einnig verið valkostakökur sem muna útlit, hegðun og val notenda á vefsvæðum og svo markaðskökur sem fylgja notendum eftir milli vefsvæða. Einnig er mikilvægt að safna tölfræðilegum gögnum um notkun vefsíðunnar til þess að meta umferð og notkun vefsíðunnar.
Stjórnun vafrakaka
NÁTT notar tvö fótspor eða vafraköku frá þriðja aðila. Fótspor eru notuð til að vista upplýsingar um t.d. hvort notandi hefur áður heimsótt síðuna, hversu lengi hann var á síðunni og frá hvaða vefsvæði notandinn kom. Vefir þriðja aðila sem má nálgast á vef NÁTT (t.d. tengill í grein eða vefur samstarfsaðila) gætu safnað persónuupplýsingum. Um þá gildir persónuverndarstefna viðkomandi.
Vafrakökustefnan er endurskoðuð á þriggja ára fresti eða oftar ef sérstök þörf krefur.
Dags. 21.10.2025