Skip to main content
search

Vöktun stórmítla

Tímamörk

Langtímaverkefni sem hófst 2015.

Samstarfsaðilar

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, UK Health Security Agency í Englandi, Fuglarannsóknastöð Suðausturlands í Hornafirði og Matvælastofnun.

Styrkir

European Food Safety Authority (EFSA) og European Centre for Disease Preventation and Control (ECDC).

Um verkefnið – Markmið og verkþættir

Náttúrufræðistofnun tekur þátt í rannsóknarverkefninu VectorNet, sem hefur það að markmiði að rannsaka útbreiðslu sýklabera í Evrópu. Verkefnið hér á landi felst í árlegri söfnun skógarmítla á skilgreindum svæðum og samkvæmt stöðluðum aðferðum. Mítlum er safnað af farfuglum á vorin í samvinnu við Fuglarannsóknastöð Suðausturlands í Hornafirði og einnig af spendýrum. Lundamítlum er safnað úr sjófuglabyggðum víðs vegar um landið í samstarfi við Náttúrustofu Suðurlands. 

Umsjón með skráningu útbreiðslu stórmítla fer fram á stofnuninni í nánu samstarfi við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Leitað er að sjúkdómsvöldum í stórmítlum í samstarfi við UK Health Security Agency í Englandi og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Nánari upplýsingar

Skógarmítill

Alfredsson, M., Hansford, K., Carter, D. o.fl. (2025). Detection of Borrelia burgdorferi (s.l.) in Ixodes ricinus ticks collected in Iceland. Parasites & Vectors, 18, 176. https://doi.org/10.1186/s13071-025-06809-9

Matthías Alfreðsson. (2019). Rannsóknir á skógarmítlum. Í María Harðardóttir og Magnús Guðmundsson (ritstj.), Ársskýrsla 2018 (bls. 10–12). Náttúrufræðistofnun Íslands. https://utgafa.ni.is/Arsskyrslur/NI_Arsskyrsla_2018.pdf

Alfredsson, M., Olafsson, E., Eydal, M. o.fl. (2017). Surveillance of Ixodes ricinus ticks (Acari: Ixodidae) in Iceland. Parasites & Vectors, 10, 466. https://doi.org/10.1186/s13071-017-2375-2

Matthías Alfreðsson. (2017). Hefur skógarmítill numið land á Íslandi: svara leitað. Erindi flutt á Hrafnaþingi 22. mars 2017.

Náttúrufræðistofnun Íslands. (2016). Skógarmítill á Íslandi. Frétt frá 10. júní 2016.

Niðurstöður

 

Tengiliður

Matthías S. Alfreðsson, skordýrafræðingur.