Skip to main content
search

Hornbjarg

Kortasjá

Opna í kortasjá – Open in map viewer

English summary

Hælavíkurbjarg and Hornbjarg sea cliffs in Vestfirðir peninsula, NW-Iceland, are on the opposite sites of Hornvík cove. Together they hold internationally important numbers of Fulmarus glacialis (35,613 pairs), Rissa tridactyla (243,759 pairs), Uria aalge (268,275 pairs), Uria lomvia (183,738 pairs) and Alca torda (5,607 pairs).

SF-V 35

Hnit – Coordinates: N66,44348, V22,39987
Sveitarfélag – Municipality: Ísafjarðarbær
IBA-viðmið – Category (Hælavíkur- og Hornbjarg): A4i, A4ii, A4iii, B1i, B1ii, B2
Stærð – Area: 1.171 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)

Hornbjarg er nyrsti tangi Vestfjarða og nær á milli Hornvíkur og Látravíkur. Hæst nær bjargið 534 m y.s. Það er eitt af þremur mestu fuglabjörgunum á Íslandi. Venja hefur skapast að telja saman varpfugla í Hælavíkurbjargi og Hornbjargi enda eru þau skammt frá hvort öðru, sitt hvorum megin við Hornvík.

Eftirfarandi eru ósundurliðaðar tölur fyrir Hælavíkurbjarg og Hornbjarg. Þær tegundir sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru fýll (35.613 pör), rita (243.759 pör), langvía (268.275 pör), stuttnefja (183.738 pör) og álka (5.607 pör).

Hornbjarg er innan Hornstrandafriðlands og á IBA-skrá.

Helstu varpfuglar í Hælavíkur- og Hornbjargi samanlagt – Key bird species breeding in Hælavíkurbjarg and Hornbjarg, in total

Tegund
Species
Latneskt heiti
Scientific name
Árstími
Season
Fjöldi (pör)
Number (pairs)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Fýll1 Fulmarus glacialis

Varp–Breeding

35.613

2007

3,0

B2
Rita2 Rissa tridactyla

Varp–Breeding

243.759

2007

42,0

A4i, B1i, B2
Langvía3 Uria aalge

Varp–Breeding

268.275

2007

38,9

A4ii, B1ii, B2
Stuttnefja3 Uria lomvia

Varp–Breeding

183.738

2007

55,7

A4ii, B1ii
Álka3 Alca torda

Varp–Breeding

5.607

2007

1,8

A4ii, B1ii, B2*
Alls–Total    

736.992

    A4iii
¹Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14.
2Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2013. Framvinda íslenskra ritubyggða. Bliki 32: 1–10.
3Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2019. Svartfugl í íslenskum fuglabjörgum 2006–2008. Bliki 33: 35–46.
*70.000 pör (pairs) 1985