Víðidalstunguheiði–Blanda
Kortasjá
Opna í kortasjá – Open in map viewer
English summary
Víðidalstunguheiði–Blanda wetland plateau, NW-Iceland, is internationally important for Cygnus cygnus during breeding (157 pairs) and moulting (557 birds) as well as breeding Gavia immer (16 territories).
VOT-N 2
Hnit – Coordinates: N65,26222, V19,88131
Sveitarfélag – Municipality: Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur
IBA-viðmið – Category: B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 34.200 ha

Vel gróið heiðaflæmi í Húnavatnssýslum sem liggur upp af Víðidal og austur fyrir Blöndulón, 400–600 m y.s. Liggur upp frá Víðidal og suður að Stórasandi og Arnarvatni. Votlendi er víða; mýrar, flóar, tjarnir og vötn. Þetta svæði er alþjóðlega mikilvægt fyrir álft, bæði á varptíma (157 pör) og á fjaðrafellitíma (557 fuglar) og himbrima (16 óðul).
Svæðið er að hluta á náttúruminjaskrá og IBA-skrá, þ.e. Eyjavatn–Friðmundarvötn.

Helstu fuglategundir á svæðinu Víðidalstunguheiði–Blanda – Key bird species in the area Víðidalstunguheiði–Blanda*
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Himbrimi | Gavia immer |
Varp–Breeding |
**16 |
2016 |
3,2 |
B2 |
Álft | Cygnus cygnus |
Varp–Breeding |
157 |
2012 |
1,5 |
B1i |
Álft | Cygnus cygnus |
Fellir–Moult |
***557 |
2005 |
2,1 |
B1i |
*Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – IINH, unpublished data. **Þekkt óðul. – Known territories. ***Fuglar. – Birds. |