Ölfusforir
Kortasjá
Opna í kortasjá – Open in map viewer
English summary
Ölfusforir wetlands, S-Iceland, are an internationally important wintering site for Mergus merganser.
VOT-S 7
Hnit – Coordinates: N63,95807, V21,18902
Sveitarfélag – Municipality: Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus
IBA-viðmið – Category: B1i
Stærð svæðis – Area: um 2.340 ha

Ölfusforir eða Forir eru votlendissvæði við neðanverða Ölfusá að vestan og eru víðáttumiklar og blautar engjar með tjörnum, skurðum, kaldavermslum og laugum. Mikið og fjölskrúðugt fuglalíf er í Ölfusforum á öllum árstímum, m.a. er mikið af öndum þar (Jóhann Óli Hilmarsson 1998). Eina tegundin sem virðist ná alþjóðlegum verndarviðmiðum seinni árin er gulönd en hún sést venjulega í tugatali.
Ölfusforir eru á náttúruminjaskrá og á IBA-skrá, ásamt ósavæði Ölfusár.

Helstu fuglategundir í Ölfusforum – Key bird species in Ölfusforir*
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Gulönd | Mergus merganser |
Vetur–Winter |
24 |
2005–2014 |
2,7 |
B1i |
*Byggt á Náttúrufræðistofnun, óbirt gögn. – From IINH, unpublished data. |
Heimildir – References
Jóhann Óli Hilmarsson 1998. Fuglalíf og votlendi við Ölfusárós. Í Jón S. Ólafsson, ritstj. Íslensk votlendi: verndun og nýting, bls. 185‒191. Reykjavík: Háskólaútgáfan.