Skip to main content
search

Laus störf

Sérfræðingur í vistgerðakortlagningu

Náttúrufræðistofnun auglýsir laust tímabundið fullt starf sérfræðings á grasafræðisviði til að taka þátt í kortlagningu vistgerða landsins. Starfið felur í sér fjölbreytta og umfangsmikla vettvangsvinnu ásamt vinnslu landupplýsinga í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga stofnunarinnar.

Sérfræðingurinn tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd gróðurmælinga, skráningu plantna og umhverfisaðstæðna og gerð og uppfærslu vistgerðakorta. Starfið hentar einstaklingi sem vill sameina vettvangsvinnu og kortagerð.

Starfsstöð getur verið á Akranesi, Akureyri eða í Garðabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd vettvangsvinnu.
  • Gróðurmælingar, meðal annars sniðmælingar, greining og skráning tegunda æðplantna og skráning upplýsinga um vistgerðir og umhverfisaðstæður.
  • Söfnun staðsetningargagna og viðmiðunarpunkta til kortlagningar og sannprófunar vistgerðakorta.
  • Vinnsla landupplýsinga í QGIS með hliðsjón af vettvangsathugunum, loftmyndum, gervitunglamyndum og niðurstöðum annarra sérfræðinga.
  • Gerð og uppfærsla vistgerðakorta
  • Gæðaeftirlit með vettvangsgögnum, landupplýsingum og kortum.
  • Frágangur korta, framsetning niðurstaða og þátttaka í skýrslugerð.
  • Önnur tilfallandi verkefni á fagsviðinu í samráði við yfirmann.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í líffræði, vistfræði eða skyldum greinum
  • Marktæk reynsla af gróðurrannsóknum og vettvangsvinnu.
  • Haldgóð þekking á íslenskri flóru.
  • Færni og reynsla af notkun QGIS og vinnslu landupplýsinga.
  • Nákvæmni í skráningu, meðferð og yfirferð gagna.
  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Sjálfstæði í störfum og skipulögð vinnubrögð.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð samstarfshæfni.
  • Gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn

  • Ferilskrá.
  • Staðfest afrit prófskírteina.
  • Upplýsingar um umsagnaraðila.
  • Stutt kynningarbréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og gerð grein fyrir því hvernig menntun og reynsla umsækjanda nýtist í auglýstum starfsþáttum.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um niðurstöðu þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Náttúrufræðistofnun í samræmi við jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu stofnunarinnar.

Um Náttúrufræðistofnun

Hjá Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og heimilislegur, þar sem leitast er við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað og heilsueflandi vinnuumhverfi. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.

Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru sex, í Garðabæ, á Akranesi, á Breiðdalsvík, í Mývatnssveit, á Raufarhöfn og á Akureyri.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Pawel Wasowicz
Sviðsstjóri
Tölvupóstur: Pawel.Wasowicz@natt.is 
Sími: 430 9000

Heiður Reynisdóttir
Mannauðsstjóri
Tölvupóstur: Heidur.Reynisdottir@natt.is 
Sími: 430 9000

Sækja um starf

Öll laus störf eru einnig auglýst á Starfatorgi.