Auglýst eftir gróðurvistfræðingi
Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til að taka þátt í spennandi verkefnum stofnunarinnar á sviði gróðurvistfræði. Starfið felur í sér rannsóknir, kortlagningu og greiningarvinnu í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vöktun og rannsóknir á sviði gróðurvistfræði
- Kortlagning, greining, flokkun og skráning á vistgerðum landsins
- Greining á æðplöntum, mosum og fléttum
- Vinna við mat á verndargildi og gerð válista vistgerða og tegunda
- Vettvangsvinna og skýrslugerð í ráðgjafaverkefnum
- Ráðgjöf og fræðsla til sérfræðinga og almennings
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar 2024.