Auglýst eftir stofnvistfræðingi
Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til að taka þátt í spennandi verkefnum stofnunarinnar á sviði fuglafræði. Starfið felur í sér rannsóknir og greiningarvinnu í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vöktun og rannsóknir á sviði stofnvistfræði og fuglafræði
- Úrvinnsla og greining gagna
- Vinna við mat á verndargildi og gerð válista tegunda
- Vettvangsvinna og skýrslugerð í ráðgjafaverkefnum
- Ráðgjöf og fræðsla til sérfræðinga og almennings
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2024.