Vetrarfuglatalningar 2024
Árleg vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar fer fram helgina 28.–29. desember næstkomandi. Markmið talninganna er að kanna fjölda og dreifingu einstakra tegunda í mismunandi landshlutum. Einnig nýtast gögnin til að meta stofnbreytingar hjá sumum tegundum. Fuglaáhugamenn hafa frá upphafi borið hitann og þungann af þessu starfi.
Náttúrufræðistofnun hefur um langt skeið skipulagt fuglatalningar áhugafólks sem sinnir þeim í sjálfboðavinnu um áramótin. Fyrsta talningin átti sér stað þann 21. desember 1952, á stysta degi ársins, og var þá talið á 10 svæðum og er enn talið á sumum þeirra. Svæðum hefur fjölgað jafnt og þétt og nú er talið að jafnaði á yfir 200 svæðum árlega.

Í gegnum tíðna hefur verið talið á um 370 svæðum og eru einstakar talningar orðnar um sjö þúsund. Svæðin eru dreifð um láglendi landsins og eru flest við sjávarsíðuna þar sem flestra fugla er von á þessum árstíma. Heildarlengd stranda innan talningarsvæðanna nemur 2.000 km sem er um þriðjungur af heildarstrandlengju Íslands, sem er á bilinu 5.000–6.000 km.
Undanfarin ár hafa að jafnaði sést um eða yfir 80 fuglategundir í hverri talningu, þar af er um helmingur staðfuglar og vetrargestir, auk þess sem ýmsir flækingsfuglar hafa sést. Alls hafa verið skráðar hátt á annað hundrað tegundir. Æðarfugl hefur nær undantekingalaust verið algengasta tegundin og sést við ströndina um land allt.
Á þeim 72 árum sem liðin eru frá upphafi vetrarfuglatalninga hafa orðið miklar breytingar á fuglafánu Íslands. Til dæmis hafa starar og svartþrestir náð hér fótfestu og þreyja hér bæði þorrann og góuna en virðast ekki vera farfuglar að neinu ráði.
Niðurstöður vetrarfuglatalninga 2002–2023
Á vef Náttúrufræðistofnunar hefur verið sett upp ný kortasjá sem sýnir talningasvæði vetrarfuglatalninga. Notendur geta þysjað inn á hvert svæði til að skoða nánar. Kortasjáin er enn í vinnslu. Talningasvæði sem fylgja ekki strandlengjunni eru einungis merkt með svæðisnúmerum en afmörkun þeirra er væntanleg. Frekari upplýsingar og niðurstöður fyrir hvert svæði verða fljótlega aðgengilegar í sprettiglugga.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í fuglatalningunum sem fara fram 28.–29. desember geta haft samband við Svenju N.V. Auhage (svenja.auhage@natt.is). Hún veitir nánari upplýsingar um talningarnar, einstök talningarsvæði og annað sem tengist talningunum.