Skip to main content
search

Notendaþing Hafþjónustu Copernicus

Miðvikudaginn 19. febrúar 2026 verður haldið notendaþing Hafþjónustu Copernicus. Þar kemur saman fjölbreyttur hópur fólks sem starfar við haf- og strandsvæði, til að kynnast gögnum og þjónustu Copernicus og ræða hvernig þau nýtast í íslenskum aðstæðum.

Á þinginu verður farið yfir hvað Hafþjónusta Copernicus hefur upp á að bjóða og hvernig gögnin má nýta í daglegu starfi og rannsóknum. Sýnd verða raunveruleg dæmi úr íslenskum verkefnum, meðal annars með kortasjánni MyOceanViewer, og þátttakendur fá tækifæri til að deila reynslu sinni, spyrja spurninga og ræða hvaða gögn og upplýsingar vanti helst.

Viðburðurinn er ætlaður öllum sem starfa við eða hafa áhuga á hafinu og nýtingu hafgagna, hvort sem þeir starfa við rannsóknir, stjórnsýslu eða atvinnulíf. Umfjöllunarefni varðar meðal annars hafís, sjávarhita, fiskveiðar, lífríki hafsins, siglingar, hafrannsóknir og bláa hagkerfið. 

Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg.

Notendaþingið er haldið í tengslum við Blue North-verkefnið, samstarfsverkefni Íslenska sjávarklasans, Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Viðburðurinn er styrktur af EES, Mercator Ocean og Hafþjónustu Copernicus.

Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á íslensku og ensku á vef Copernicus á Íslandi.