Fréttir
- 2026 chevron_left
- 2025 chevron_right
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Hrafnaþing hefst að nýju
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar hefst að nýju miðvikudaginn 21. október. Í vetur verður gestum aftur boðið að mæta á erindin í starfsstöð stofnunarinnar í Urriðaholti í Garðabæ, en síðasta vetur fóru þau eingöngu fram á netinu.
200.000 örnefni komin á kortið
Mikilvægum áfanga var náð í skráningu íslenskra örnefna þegar örnefni númer 200.000 var skráð í örnefnagrunn Náttúrufræðistofnunar. Það er Ljósavatnalækur í landi Herjólfsstaða í Skaftárhreppi.
Heiðagæsir taldar um síðustu helgi
Heiðagæsir voru taldar um síðustu helgi. Um áratugaskeið hafa gæsir verið taldar á vetrarstöðvum á Bretlandseyjum. Um liðna helgi, 10.–11. október 2026, beindust talningar að heiðagæs.
Sveiflur í fjölda mýflugna fylgjast lítið að milli...
Ný vísindagrein í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um sveiflur í magni rykmýs í fimm vötnum á Norðausturlandi. Niðurstöðurnar sýna að þótt mikið sé af mýi við eitt vatn getur verið lítið við annað, jafnvel þegar stutt er á milli vatna.
Berggangur á Streitishvarfi sýnir hvernig ólíkar...
Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu Bulletin of Volcanology fjallar um rannsóknir á berggangi á Streitishvarfi á sunnanverðum Austfjörðum. Berggangurinn varð til þegar basaltkvika og kísilrík kvika blönduðust undir yfirborði jarðar fyrir um 10,7 milljónum ára.
Botnþörungar hafa áhrif á næringarefnabúskap...
Ný vísindagrein í tímaritinu Aquatic Ecology fjallar um hvernig þörungar á botni Mývatns hafa áhrif á framboð næringarefna í vatninu. Rannsóknin bendir til þess að þeir geti dregið úr magni fosfats sem berst úr botnsetinu út í vatnið.
Hakkaþon Copernicus Ocean
Hakkaþon Copernicus Ocean verður haldið í Húsi sjávarklasans við Grandagarð 16 helgina 16.–18. október næstkomandi. Þar gefst nemendum, frumkvöðlum og öðru áhugafólki tækifæri til að nýta gögn um hafið til að þróa lausnir á áskorunum sem tengjast hafsvæðum Íslands og hafsækinni starfsemi.
Tengsl veðurfars og varptíma hjá fálkum og...
Nýleg rannsókn sem birtist í vísindatímaritinu Global Change Biology sýnir að veðurfar tengist bæði varptíma og viðkomu fálka og förufálka á norðurslóðum. Breytingarnar eru þó ólíkar eftir tegundum og svæðum.
Tvær aldir frá fæðingu Benedikts Gröndal
Í dag, 6. október, eru 200 ár liðin frá fæðingu Benedikts Gröndal, skálds, fræðimanns og náttúrufræðings. Benedikt átti ríkan þátt í stofnun Náttúrugripasafnsins í Reykjavík, sem starfsemi Náttúrufræðistofnunar á rætur að rekja til.