Fylgst með ferðum íslenskra fálkaunga með GPS-sendum
Í sumar voru sjö fálkaungar úr tveimur hreiðrum í nágrenni Mývatns merktir með GPS-sendum. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkir sendar eru notaðir til að fylgjast með ferðum fálka hér á landi. Frá því ungarnir yfirgáfu æskuslóðirnar síðsumars og fram í byrjun nóvember fóru þeir um nær allt norðausturhorn landsins.
Fyrstu fjórar til sex vikurnar eftir að ungarnir flugu úr hreiðri voru þeir enn á framfæri foreldranna. Á daginn leituðu þeir smám saman lengra frá hreiðrinu en komu aftur í nágrenni þess til að sofa. Einn unginn fór allt að 22 kílómetra frá hreiðrinu á þessum tíma.
Þegar ungarnir yfirgáfu æskuslóðirnar tók það þá aðeins fáeina daga að finna sér heimasvæði. Allir sjö fóru þaðan í könnunarferðir og fjórir þeirra fluttu sig síðar á nýtt heimasvæði. Fimm unganna dvöldu langdvölum á heiðalöndum í Núpasveit, á Melrakkasléttu eða í Þistilfirði, 70–100 kílómetra frá æskuslóðunum við Mývatn. Þessar heiðar eru meðal mikilvægustu uppeldissvæða rjúpu á Íslandi og líklegt er að þar hafi ungarnir fundið ríkulegt æti.
Merkingarnar eru samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar og Mohamed Bin Zayed Raptor Conservation Fund. Ætlunin er að merkja fleiri fálkaunga næsta sumar. Með því að fylgja fuglunum eftir árið um kring vonast rannsakendur til að fá betri mynd af ferðum þeirra, búsvæðavali og lífslíkum.
Nánari upplýsingar um ferðalögin er að finna í greinargerðum á íslensku og ensku:
Ný gögn um ferðalög og dreifingu fálka (pdf)
New data on the movements and distribution of gyrfalcons (pdf)