Skip to main content
search

Melrakkinn á válista spendýra

Náttúrufræðistofnun hefur endurmetið stöðu melrakkans á válista spendýra. Við síðasta mat árið 2018 var hann í flokknum „ekki í hættu“ (LC) en færist nú í flokkinn „í nokkurri hættu“ (VU). Samkvæmt stofnmati sem stofnunin kynnti í maí síðastliðnum fækkaði fullorðnum refum á Íslandi um tæp 40% frá vorinu 2011 til vorsins 2024.

Vorið 2011 voru um 7.800 fullorðnir refir á landinu samkvæmt stofnmatinu en um 4.700 vorið 2024. Bæði stærð stofnsins og fækkunin á tímabilinu liggja til grundvallar breyttri flokkun. Við matið er farið eftir forsendum og viðmiðum Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN).

Stofnmatið sem kynnt var í maí byggist á veiðigögnum og aldursgreiningum á hluta þeirra refa sem veiðast hér á landi á hverju ári. Áður var fjöldi refa metinn að hausti, einnig með útreikningum byggðum á veiðigögnum og aldursgreiningum á hluta veiddra refa. Þá töldust með yrðlingar frá sumrinu sama ár en aðeins hluti þeirra lifir fyrsta veturinn. Með því að meta stofnstærðina að vori fæst betri mynd af því hversu mörg dýr eru til staðar í stofninum og geta tekið þátt í tímgun.

Á Íslandi er stærsti melrakkastofn Norðurlanda og hefur hann verið einangraður hér í þúsundir ára. Melrakkinn er útbreiddur um allt land en þéttleiki hans er mestur á Vestfjörðum, einkum við fuglabjörg og gjöfular rekastrendur.

Eldri gögn benda til þess að refum hafi tekið að fækka fyrir 2011 og að fækkunin hafi einkum orðið á vestanverðu landinu. Lítið er vitað um ferðir refa milli landshluta og því miðast válistamatið við stofninn á landinu öllu. Enn er óljóst hvers vegna refum hefur fækkað og hvort fækkunin heldur áfram. Brýnt er að kanna orsakir fækkunarinnar og hefja vinnu við stjórnunar- og verndaráætlun fyrir íslenska refinn.

Melrakki

Válisti er skrá yfir lífverur sem eiga undir högg að sækja, eru í útrýmingarhættu eða hefur verið útrýmt. Við gerð válista er stuðst við viðmið Alþjóðanáttúruverndarsambandsins, IUCN, en það gerir kröfur um nokkuð nákvæma vitneskju um útbreiðslu tegunda, fjölda einstaklinga og stofnstærðarbreytingar.

Válistar og friðun