Skip to main content
search

58 arnarungar komust á legg í sumar

Arnarvarpið sumarið 2026 er talið hafa verið í meðallagi í samanburði við undanfarin ár. Af 61 pari sem varp kom 41 upp samtals 58 ungum. Árlega eru heimsótt um 100 þekkt óðul til að fylgjast með varpi og voru 78 þeirra talin setin í ár. Varp fannst á þremur áður óþekktum stöðum. 

Fjöldi para sem urpu í sumar var svipaður og í fyrra. Sumarið 2025 voru 74 óðul talin setin og 60 pör urpu. Staðfest var að 36 þeirra komu upp að minnsta kosti 49 ungum. 

Heildarfjöldi unga í ár var því með betra móti. Meðal annars fundust stórir og hraustir þríburar í einu hreiðri, sem telst nokkuð sérstakt. Þrátt fyrir háan ungafjölda ber að nefna að aðeins var orpið á 61 af þeim 78 óðulum sem talin voru setin. Af þeim pörum sem urpu kom aðeins 41 par upp ungum. Fjöldi para sem varpið misfórst hjá telst því þó nokkur.  

Áfram eru talin um 90 arnaróðul í ábúð á vestanverðu landinu, frá Faxaflóa norður í Húnaflóa. Einstaka pör eiga óðal á hálendinu.

Í sumar tókst einungis að merkja 52 unga í 37 hreiðrum vegna erfiðs aðgengis eða að ungarnir voru orðnir fleygir þegar komið var að hreiðrinu. Tíðarfar var óhagstætt hluta merkingartímabilsins og drógust merkingar fram í ágúst. Þá voru ungarnir orðnir stórir og hálffleygir og því tókst aðeins að setja leiðarrita á tvo unga í sumar.

Á árunum 2019–2025 voru settir sendar á 80 arnarunga. Af þeim er 29 enn á lífi með virkan leiðarrita og virðast þessir fuglar allir við góða heilsu. Að ungunum tveimur frá því í sumar meðtöldum hafa alls 82 arnarungar fengið leiðarrita og eru 31 enn á lífi og með virka senda. Á sama tíma í fyrra voru 44 fugla á lífi og með virkan senda, en við lokun 3G-farsímakerfis í vor var slökkt á átta virkum sendum frá árinu 2019 sem notuðu það kerfi. 

Gera má ráð fyrir að ernirnir beri leiðarritana ævilangt. Með tímanum verður því hægt að kortleggja ferðir þeirra og sjá hvaða leiðir þeir velja, hvar þeir dvelja og hve lengi þeir halda til á hverjum stað. Gögnin munu nýtast við mat á þýðingu einstakra svæða fyrir erni og við ákvarðanir um hvar beri að forðast framkvæmdir, til dæmis að reisa vindmyllur, enda eru þær örnum skeinuhættari en flestum öðrum fuglum.

Náttúrufræðistofnun vinnur að vöktun arnarins í samstarfi við Háskóla Íslands, Náttúrustofu Vesturlands, og heimamenn.