Skip to main content
search

Fundur aðildarríkja samningsins um líffræðilega fjölbreytni í Armeníu

Á sautjánda aðildarríkjafundi samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni, COP17, samþykktu aðildarríkin áætlun um hvernig hraða megi aðgerðum til verndar líffræðilegri fjölbreytni fram til ársins 2030. Ný úttekt sýnir að þrátt fyrir framfarir á undanförnum árum miðar aðgerðum of hægt til að markmiðin náist.

Fundurinn var haldinn í Yerevan í Armeníu dagana 19.–31. október síðastliðinn. Ísland er aðili að samningnum ásamt 195 öðrum ríkjum heims. Sjö manna sendinefnd sótti fundinn fyrir Íslands hönd undir forystu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Í henni voru einnig fulltrúar utanríkisráðuneytis, atvinnuvegaráðuneytis, Náttúrufræðistofnunar og Náttúruverndarstofnunar. Þrír sérfræðingar frá Náttúrufræðistofnun voru í sendinefndinni.

Árið 2022 komu aðildarríkin sér saman um nýtt rammasamkomulag um líffræðilega fjölbreytni (Kunming Montreal Global Biodiversity Framework). Í því eru sett fram langtímamarkmið um vernd náttúru og lífríkis til ársins 2050 og 23 aðgerðamarkmið til ársins 2030. Eitt þeirra er að vernda að minnsta kosti 30 prósent land- og ferskvatnssvæða og að minnsta kosti 30 prósent haf- og strandsvæða á heimsvísu. 

Stærsta umræðuefnið á þinginu var úttekt á því hvernig aðildarríkjunum hefur miðað við að ná aðgerðamarkmiðunum 23, nú þegar tímabil þeirra er hálfnað. Meginniðurstaðan var sú að framvinda væri ekki nægileg til að ná markmiðunum fyrir árið 2030, þó mörg jákvæð skref hefðu verið stigin á undanförnum árum. Niðurstöður úttektarinnar eru teknar saman í útdrætti í skýrslunni State of Biodiversity Action. 

Með Yerevan-áætluninni (Yerevan Pathway), sem samþykkt var á fundinum, brugðust aðildarríkin við niðurstöðum úttektarinnar og sammæltust um forgangsverkefni fram til ársins 2030. Í áætluninni er lögð áhersla á víðtækt samstarf ríkja, alþjóðastofnana, sveitarstjórna, félagasamtaka og atvinnulífs. Meðal forgangsverkefna er að vinna gegn efnahagslegum hvötum og niðurgreiðslum sem skaða náttúruna og auka fjárhagslegan, vísindalegan og tæknilegan stuðning við þróunarríki. Þá er lögð áhersla á að samræma fjárlög og aðrar efnahagslegar ákvarðanir ríkja við efnisatriði rammasamkomulagsins og styrkja innleiðingu og framkvæmd, vöktun, skýrslugjöf og endurskoðun.

Alls voru samþykktar 50 ákvarðanir til að styrkja vinnu á sviði vísinda og hraða framkvæmd rammasamkomulagsins. Þær varða meðal annars  verndarsvæði, líffræðilega fjölbreytni skóga, sjálfbæra nýtingu villtra dýra, samspil líffræðilegrar fjölbreytni og loftslagsmála, framandi ágengar tegundir, áhættumat á erfðabreyttum lífverum og líffræðilega fjölbreytni í hafi og á strandsvæðum. Einnig var samþykkt að samþætta og auka vægi líffræðilegrar fjölbreytni sem víðast í samfélaginu, ekki síst í atvinnulífinu (biodiversity mainstreaming). Aðildarríkin samþykktu jafnframt að leggja aukna áherslu á menntun um líffræðilega fjölbreytni og hefja undirbúning þess sem mögulega tekur við af rammasamkomulaginu eftir árið 2030.

Á fundinum tilkynnti Ísland að það myndi leggja um 160 milljóna króna framlag í sjóð rammasamkomulagsins (Global Biodiversity Framework Fund) á næstu fjórum árum. Sjóðurinn var settur á laggirnar árið 2023 og fjármagnar fyrst og fremst verkefni sem styðja þróunarríki við að ná aðgerðamarkmiðum fyrir árið 2030.