Skip to main content
search

Ný rannsókn varpar ljósi á myndun Morinsheiðar

Í nýútkominni grein sem birtist í vísindatímaritinu Journal of Volcanology and Geothermal Research er fjallað um myndun Morinsheiðar við gönguleiðina yfir Fimmvörðuháls. Niðurstöðurnar benda til þess að heiðin hafi myndast þegar hraun rann í jökulstíflað vatn og að jökulhlaup hafi síðar átt stóran þátt í að móta landslagið sem þar blasir við í dag. Aldursgreiningar hraunsins, ásamt gjóskubrotum í undirliggjandi seti, benda til þess að heiðin hafi myndast tiltölulega nýlega á jarðsögulegum mælikvarða, eða fyrir um 11–12 þúsund árum, þegar jöklar voru að hopa undir lok síðasta jökulskeiðs.

Morinsheiði er flatlend að ofan en afmörkuð af bröttum hlíðum og djúpum giljum. Margir sem gengið hafa yfir Fimmvörðuháls kannast við heiðina, enda liggur gönguleiðin yfir hana. Þótt lögun hennar minni á stapa benda niðurstöðurnar til annarrar myndunarsögu. Hraun rann frá hlíðum Kötlu út í jökulstíflað vatn og hlóðst þar upp þar til það náði upp úr vatninu. Síðar grófst Hrunagil í gegnum jarðlögin og skildi Morinsheiði frá fjallshlíðinni.

Við rannsóknina voru jarðlög Morinsheiðar kortlögð og gerðar efnagreiningar og aldursgreiningar á bergi. Þannig var hægt að rekja hvernig hraunið hlóðst upp, við hvaða aðstæður það storknaði og hvernig landslagið breyttist í kjölfarið.

Á þeim tíma sem hraunið rann lá jökull milli Kötlu og Eyjafjallajökuls, norðan við Fimmvörðuháls, og teygði sig vestur eftir Markarfljótsdal. Vatn sem myndaðist þegar jökulís bráðnaði í gosinu safnaðist í lón milli jökulsins og fjallshlíðanna í kring. Hraunið rann út í vatnið og myndaði meðal annars bólstraberg og brotaberg. Hraunið hlóðst smám saman upp þar til það náði upp úr vatninu. Eftir það rann hraun ofan á eldri hraunlög á þurru landi.

Jarðlögin geyma vísbendingar um hæð vatnsborðsins og stærð jökulsins. Vatnsborðið hækkaði meðan hraunið hlóðst upp og náði að lokum um 790 metra hæð yfir sjávarmáli. Út frá því er áætlað að yfirborð jökulsins umhverfis vatnið hafi verið í um 900 metra hæð. 

Síðan hefur rof breytt landslaginu verulega. Samsvarandi jarðlög beggja vegna Hrunagils benda til þess að Morinsheiði hafi áður verið hluti af hlíðum Kötlu. Gilið, sem er um 200 metra djúpt, hafi því grafist eftir að hraunið rann. Niðurstöðurnar benda til að stór jökulhlaup hafi átt verulegan þátt í því rofi og að mikið af því hafi orðið í stökum, skammvinnum atburðum.

Birgir Vilhelm Óskarsson jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun er einn af höfundum greinarinnar.

Cole, R. P., Gudmundsson, M. T., Jicha, B. R., Gallagher, C. R., og Óskarsson, B. V. (2026). Emplacement of an englacial lava-fed delta at Katla volcano, south Iceland: Timing, paleoenvironment and landscape modification. Journal of Volcanology and Geothermal Research, 480, Article 108756. https://doi.org/10.1016/j.jvolgeores.2026.108756