Skip to main content
search

Torfajökulseldstöðin og Skaftáreldar á lista IUGS 2026 yfir hundrað merka jarðminjastaði

Torfajökulseldstöðin og Skaftáreldar eru á nýjum lista Alþjóðajarðfræðisambandsins (IUGS) yfir hundrað merka jarðminjastaði í heiminum. Náttúrufræðistofnun tilnefndi bæði svæðin. Valið er mikill heiður og alþjóðleg viðurkenning á vísindalegu gildi svæðanna. Listinn var kynntur á fundi sambandsins í Loulé í Portúgal dagana 3.–6. nóvember.

Alþjóðajarðfræðisambandið velur jarðminjastaði á listann vegna framúrskarandi vísindalegs gildis þeirra sem einstök dæmi um jarðfræðileg fyrirbæri, ferla og uppgötvanir. Staðirnir eru víðs vegar um heiminn og teljast meðal þeirra mikilvægustu til að skilja þróun jarðar og sögu hennar. 

Þetta er í þriðja sinn sem IUGS tekur saman lista yfir hundrað merka jarðminjastaði. Fyrsti listinn var birtur árið 2022 á 60 ára afmælishátíð sambandsins í Zumaia á Spáni. Annar listinn var birtur árið 2024 á 37. alþjóðlegu jarðfræðiráðstefnunni í Busan í Suður-Kóreu. Á þeim lista voru tveir íslenskir jarðminjastaðir, Vatnajökull og Reykjanes. Á vef IUGS má skoða heildarlistann yfir jarðminjastaði, hlaða bókunum um staðina niður án endurgjalds eða kaupa prentuð eintök.

Meðal nýrra staða á listanum eru þekkt náttúruundur á borð við fjallið Fuji í Japan, norsku firðina, San Andreas-misgengið í Bandaríkjunum, fjallið Aconcagua í Argentínu og Súkkulaðihæðirnar á Filippseyjum.

Viðurkenning IUGS vekur alþjóðlega athygli á stöðunum og staðfestir að þeir séu meðal þeirra sem hafa mest vísindalegt gildi á heimsvísu. Þessir staðir sem hafa gegnt lykilhlutverki í þróun jarðfræðinnar sem fræðigreinar. Þar má sjá skýr dæmi um jarðfræðilega ferla og fyrirbæri og þar hafa verið gerðar mikilvægar uppgötvanir um sögu jarðar. 

Margir hinna hundrað staða á nýja listanum njóta verndar innan þjóðgarða, jarðvanga og friðlýstra svæða. Aðrir gera það ekki eða aðeins að hluta. Viðurkenning IUGS og sú athygli sem henni fylgir geta aukið skilning á gildi staðanna, stuðlað að því að þeir nýtist betur til fræðslu og rannsókna og ekki síst styrkt vernd þeirra til framtíðar.

Robert A. Askew, Kristján Jónasson og Lovísa Ásbjörnsdóttir, jarðfræðingar hjá Náttúrufræðistofnun, unnu að íslensku tilnefningunum ásamt Catherine R. Gallagher, nýdoktor við Jarðvísindastofnun. Nína Aradóttir, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, kynnti Torfajökulseldstöðina og Skaftárelda á viðburðinum í Loulé í  Portúgal.

Torfajökulseldstöðin 

Torfajökulseldstöðin var valinn á lista yfir merkar jarðminjar vegna einstakrar jarðfræðilegrar sérstöðu sinnar á heimsvísu. Eldstöðin er stærsta virka líparíteldstöð Íslands. Þar má sjá fjölbreytt og vel varðveitt dæmi um myndun líparíts við samspil elds og íss, þar á meðal fjölmarga líparítstapa. Innan öskjunnar er jafnframt stærsta og öflugasta háhitasvæði landsins með afar fjölbreyttum jarðhitafyrirbærum. Sérstaða svæðisins felst einnig í samspili tveggja ólíkra eldstöðvakerfa, þar sem kvikugangar frá Bárðarbungu hafa ítrekað valdið því að basísk og súr kvika hafa blandast. Saman gerir þetta Torfajökulseldstöðina að einstökum viðmiðunarstað fyrir rannsóknir á eldvirkni, jarðhita og samspili elds og íss.
 

Skaftáreldar

Skaftáreldar voru valdir á listann vegna einstakrar stærðar, alþjóðlegs vísindagildis og víðtækra áhrifa á náttúru og samfélög. Gosið stóð á árunum 1783–1784 og var næststærsta sprungugos á Íslandi á sögulegum tíma. Í gosinu mynduðust Lakagígar, 29,5 km löng gígaröð, og Eldhraun, sem þekur um 600 km2 og er 14,7 km3 að rúmmáli. Hraunrennsli og mengun frá gosinu hafði gríðarleg áhrif á náttúru og mannlíf á Íslandi. Áhrifin náðu einnig langt út fyrir landsteinana með loftslagsbreytingum og umhverfisáhrifum víða um Evrópu. Skaftáreldar eru meðal best skráðu eldgosa heims, meðal annars vegna nákvæmra samtímaathugana Jóns Steingrímssonar, sem gera vísindamönnum kleift að endurgera framvindu gossins með einstökum hætti.