Skip to main content
search

Válisti fugla 2025 gefinn út

Nýtt rit í ritröðinni „Fjölrit Náttúrufræðistofnunar“ er komið út. „Válisti fugla 2025“ inniheldur mat á stöðu fuglategunda á Íslandi. Megintilgangurinn er að draga fram hvaða tegundir eru í útrýmingarhættu hér á landi og veita upplýsingar sem styðja við aðgerðir til verndar náttúrunni.

Válisti fugla 2025 var fyrst birtur á vef Náttúrufræðistofnunar í júlí 2025 en hefur nú verið gefinn út í PDF-formi með DOI-númeri, sem auðveldar tilvísanir í listann. Válistinn er unninn samkvæmt viðmiðum Alþjóðanáttúruverndarsambandsins (IUCN) þar sem tegundir eru flokkaðar í hættuflokka á grundvelli gagna um útbreiðslu, stofnstærð og breytingar á stofnum. Með því að greina og fylgjast með ástandi fuglategunda hjálpa válistar stjórnvöldum, verndarsamtökum og vísindamönnum að forgangsraða verndunaraðgerðum og stuðla að viðhaldi líffræðilegs fjölbreytileika. Válistar eru því lykilatriði í stefnumótun náttúruverndar, sem og við mat á áhrifum umhverfisbreytinga, hvort sem þær eru af náttúrulegum eða mannlegum orsökum.

Niðurstöðurnar sýna að af 91 metinni fuglategund eru 43 á válista (EX, RE, CR, EN, VU). Ein tegund er útdauð á heimsvísu (EX) og þrjár eru ekki lengur varpfuglar á Íslandi (RE). Af þeim tegundum sem teljast í hættu eru fjórar í bráðri hættu (CR), tíu í hættu (EN) og 25 í nokkurri hættu (VU). Að auki eru 19 tegundir taldar í yfirvofandi hættu (NT).

Válistinn er aðgengilegur á vef stofnunarinnar: 

Náttúrufræðistofnun. (2025). Válisti fugla 2025. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 61. Náttúrufræðistofnun. DOI: 10.33112/1027-832X.61