Ný vísindagrein um áhrif veiða á atferli rjúpu
Nýlega var birt vísindagrein í tímaritinu Wildlife Biology sem fjallar um hvernig rjúpur bregðast við nærveru fólks á veiðitíma. Rannsóknin byggir á gögnum frá Íslandi og ítölsku Ölpunum og varpar ljósi á hvernig veiðar hafa áhrif á styggð fugla.
Í rannsókninni var gengið að sitjandi rjúpum og mælt hversu nálægt þeim hægt var að komast áður en þær flugu upp og forðuðu sér í burtu. Þessi fjarlægðarmæling var notuð sem vísbending um hversu varar rjúpurnar voru um sig gagnvart manninum.
Niðurstöðurnar sýna að á svæðum þar sem rjúpnaveiðar voru stundaðar urðu fuglarnir greinilega styggari á veiðitímabilinu miðað við vikurnar á undan. Rjúpurnar létu fólk síður nálgast sig og flugu fyrr upp en áður. Þegar veiðitímabilinu lauk dró úr þessari varfærni aftur og hegðunin sneri að mestu til baka í fyrra horf. Á svæðum þar sem veiðar voru ekki leyfðar hélt hegðun fuglanna sér hins vegar nánast óbreytt allt tímabilið.
Rannsóknin sýnir að rjúpur geta brugðist hratt við aukinni áhættu í umhverfinu og lagað hegðun sína að aðstæðum. Slíkar breytingar geta haft víðtæk áhrif, til dæmis á það hvernig dýrin nýta búsvæði sín og hvernig fólk upplifir þau í náttúrunni. Niðurstöðurnar geta nýst við að finna jafnvægi milli sjálfbærra veiða og annarrar útivistar. Þær sýna einnig að á svæðum þar sem ekki er veitt eru dýr spakari en á veiðisvæðum og það eitt og sér getur aukið upplifun þeirra sem vilja njóta náttúrunnar á annan máta en að veiða.
Ólafur Karl Nielsen vistfræðingur og starfsmaður Náttúrufræðistofnunar er meðal höfunda greinarinnar.
Sooth, F., Nielsen, Ó. K., og Storch, I. (2025). Behavioural responses of a gamebird to human encounters across the hunting season. Wildlife Biology. https://doi.org/10.1002/wlb3.01535