Skip to main content
search

Auglýst eftir umsóknum um ferðastyrki til rannsókna á Melrakkasléttu

Rannsóknastöðin Rif, sem Náttúrufræðistofnun starfrækir á Raufarhöfn, auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki til rannsókna á Melrakkasléttu innan verkefnisins „Northern Insights: Research Mobility Grants for Melrakkaslétta“. Leitað er eftir umsóknum frá rannsakendum með starfsstöð á Íslandi, sérstaklega frá nemum sem eru að hefja rannsóknarferil sinn.

Verkefnin geta fjallað um fjölbreytt viðfangsefni, svo sem líffræðilegan fjölbreytileika, loftslagsbreytingar, vistfræði, félagsfræði, ferðaþjónustu og byggðaþróun, með það að markmiði að efla rannsóknir á Melrakkasléttu og styrkja tengsl við nærsamfélagið.

Veittir verða alls sex styrkir í tveimur úthlutunum. Hver styrkur getur numið allt að 200.000 kr. og er ætlaður til skammtímarannsókna á vettvangi, allt að sex daga í senn.

Styrkurinn nær til: 

  • ferðakostnaðar (eldsneytis)
  • fæðis, sem er endurgreitt, að því gefnu að það sé keypt í Raufarhöfn
  • aðgangs að rannsóknaraðstöðu
  • gistingar sem Rannsóknastöðin Rif skipuleggur og greiðir fyrir

Gert er ráð fyrir að styrkþegar kynni verkefni sín opinberlega fyrir heimamönnum.

Fyrri úthlutun tekur til verkefna sem fara fram á tímabilinu maí til ágúst 2026. Seinni úthlutun verður auglýst í ágúst og tekur til verkefna sem unnin verða frá september til nóvember 2026.

Umsóknarfrestur í fyrri úthlutun er til 15. apríl 2026 kl. 16:00 

Með umsókn skal skila stuttri ferilskrá (hámark ein blaðsíða) og rannsóknaráætlun (hámark tvær blaðsíður). Í rannsóknaráætlun skal m.a. gera grein fyrir heiti verkefnis, nafni umsækjanda og stofnun, stöðu, samskiptaupplýsingum, rannsóknarsviði, markmiðum, aðferðafræði, væntanlegum niðurstöðum og áætlun um miðlun. Einnig þarf að tilgreina áætlaðan tíma vettvangsvinnu, sem skal vera á bilinu 1. maí til 31. ágúst 2026.

Verkefnið er styrkt af Brothættum byggðum II – Frumkvæðissjóði.

Nánari upplýsingar veitir Pedro Miguel Reis Rodrigues líffræðingur, sem einnig tekur við umsóknum.

Rannsóknastöðin Rif