Skip to main content
search

Ný rannsókn varpar ljósi á tengsl farleiða og varptíma vaðfugla

Ný vísindagrein sem birtist í tímaritinu „Ecology and Evolution“ fjallar um tengsl milli farvegalengda vaðfugla og þess hvenær þeir koma til landsins og hefja varp. Rannsóknin byggir á gögnum frá árunum 2007–2022, þar sem skráðir voru komutímar og upphaf varps hjá níu tegundum vaðfugla á láglendi Íslands. Fuglunum var skipt í tvo hópa: tegundir sem eiga vetrarstöðvar í Evrópu og ferðast þar að leiðandi styttri vegalengdir (~1.500–1.800 km) til Íslands á vorin og tegundir sem dvelja í V-Afríku eða S-Ameríku yfir vetrartímann og ferðast lengri vegalengdir (6.000–10.000 km).

Niðurstöðurnar sýna að tegundir sem hafa vetrarstöðvar nær Íslandi, til dæmis tjaldur og heiðlóa, koma að jafnaði um sex vikum fyrr til landsins en tegundir sem ferðast lengra, svo sem lóuþræll og spói. Þrátt fyrir þennan mun er munurinn á varptíma aðeins um ein til tvær vikur.

Á rannsóknartímabilinu kom í ljós að bæði tegundir sem ferðar stuttar og langar vegalengdir verpa nú fyrr en áður. Komutími hefur hins vegar aðeins breyst hjá tegundum sem ferðast lengra, sem koma nú fyrr til landsins. Rannsóknin bendir jafnframt til að tegundir með styttri farleiðir komi almennt fyrr til landsins og hafi því meiri möguleika á að verpa fyrr á hlýjum vorum. Það getur skipt miklu fyrir farfugla að hefja varp snemma, því það getur aukið árangur í uppeldi unga og aukið möguleika einstaklinga á því að verpa aftur misfarist varp í fyrstu tilraun. Möguleikinn á að verpa fyrr þegar vor eru hlý gæti því haft áhrif á þróun fuglastofna, sérstaklega þegar bornar eru saman tegundir sem ferðast stuttar og langar leiðir.

Aldís Erna Pálsdóttir og Sölvi Rúnar Vignisson, vistfræðingar hjá Náttúrufræðistofnun, eru meðal höfunda greinarinnar.

Méndez, V., Alves, J. A., Gill, J. A., Þórisson, B., Carneiro, C., Pálsdóttir, A. E., Vignisson, S. R., Tómasson, G., & Gunnarsson, T. G. (2026). Effects of migration distance on shifting migratory and breeding phenology in waders. Ecology and Evolution, 16(3), e73080. https://doi.org/10.1002/ece3.73080